Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. apríl 2026 11:30 Marie-Louise Eta brýtur blað í sögunni sem fyrsti kvenkyns aðalþjálfarinn í þýsku úrvalsdeildinni. Boris Streubel/Getty Images Yfirmaður íþróttamála hjá Union Berlin fordæmir viðbrögðin við ráðningu fyrsta kvenþjálfara karlaliðsins og segir kvenfyrirlitningu vera vandræðalega.
Marie-Louise Eta var á sunnudag tilkynnt sem tímabundinn aðalþjálfari Union Berlin. Hún hafði áður verið aðstoðarþjálfari liðsins en með stöðuhækkuninni varð hún fyrsti kvenkyns aðalþjálfarinn í fimm bestu fótboltadeildum Evrópu. Frá því á sunnudaginn hefur hún hins vegar þurft að þola ljót ummæli. „Þetta bara vandræðalegt. Við höfum tekið eftir þessu en ég neita líka að lesa eða bara kynna mér svona rugl. Fyrir mér snýst þetta um að hafa góðan stjóra í starfi, alvöru leiðtoga. Við berum hundrað prósent traust til Loui. Mér finnst galið að þurfa að glíma við svona hluti,“ sagði Horst Heldt, yfirmaður íþróttamála hjá Union Berlin. Hann mun þó ekki þurfa að horfa lengi upp á slík ummæli í garð Eta, því í sumar tekur hún við starfi aðalþjálfara kvennaliðsins. Þá verður leitað að nýjum aðalþjálfara til frambúðar hjá karlaliðinu. Ljóst er þó að ekkert stendur í vegi fyrir því að önnur kona fái starfið. Eta stýrir sinni fyrstu æfingu með karlaliði Union Berlin í dag en liðið er í 11. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar, 11 stigum frá fallsvæðinu þegar fimm umferðir eru eftir. „Hún hefur komið sér hratt inn í hlutina. Hún hefur áður verið aðalþjálfari undir 19 ára liðsins, þannig að hún er með góða reynslu sem aðalþjálfari. Það hjálpar líka að hún þekkir okkur og við þekkjum hana. Við þurfum ekkert að sýna henni handbrögðin hér, hún þekkir þetta allt saman,“ sagði Horst Heldt.
Þýski boltinn Mest lesið Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Enski boltinn Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Fótbolti Haukar og Selfoss leika til úrslita Íslenski boltinn Real kastaði næstum frá sér sigrinum Fótbolti Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Fótbolti Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fótbolti Fleiri fréttir Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Raheem Sterling játar sök „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Coutinho og Neymar sameinaðir á ný „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Leedsarar léku sér að Newcastle Magnaður Malen og Inter kom til baka VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Sjá meira