Sport

McGregor mætti ó­vænt og barðist í Dublin

Aron Guðmundsson skrifar
Conor McGregor, UFC bardagakappi
Conor McGregor, UFC bardagakappi Vísir/Getty

Orðrómar um endurkomu Conor McGregor í bardagabúrið á vegum UFC urðu háværari eftir að Írinn tók þátt í æfingarbardaga í hnefaleikum í Crumlin á Írlandi.

McGregor, sem barðist á sínum tíma í hnefaleikabardaga á móti Floyd Mayweather, hefur aðallega barist í blönduðum bardagaíþróttum til þessa en þó ekki stigið fæti inn í bardagabúrið á vegum UFC síðan árið 2021. 

Undanfarna mánuði hefur þó verið rætt mikið um það að Írinn muni berjast í sumar á nýjan leik og þó ekkert hafi verið staðfest í þeim efnum túlka sérfræðingar í íþróttinni óvæntan sýningarbardaga McGregor á Írlandi nú nýverið það þannig að stutt sé í endurkomu hans. 

McGregor hefur lagt að hart að sér á æfingum undanfarnar vikur og í hnefaleikahringnum í Crumlin, úthverfi Dublin, tók hann þátt í þriggja lotu bardaga og hafa myndskeið úr honum farið á flug á samfélagsmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×