Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Árni Sæberg skrifar 6. mars 2026 11:34 Þorgerður Katrín, Kristrún og Inga kynntu þingsályktunartillöguna í dag. Vísir/Lýður Valberg Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fer fram þann 29.ágúst, að því gefnu að þingsályktunartillaga þess efnis verði samþykkt. Mælt verður fyrir þingsályktunartillögunni í upphafi næstu viku. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi formanna ríkisstjórnarflokkanna rétt fyrir hádegi. Fundinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan: Stjórnarráðið hefur sett sérstakan upplýsingavef um þjóðaratkvæðagreiðsluna í loftið. Þurfa að koma málinu í gegn fyrir lok maí Kveðið er á um að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fari fram í síðasta lagi á næsta ári í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna. Nýlega sagði erlendur fjölmiðill frá því að atkvæðagreiðslan gæti farið fram strax í ágúst. Samkvæmt lögum getur þjóðaratkvæðagreiðslan í fyrsta lagið farið fram þremur mánuðum eftir að Alþingi samþykkir þingsályktunartillögu þess efnis. Já eða nei? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, sagði á fundinum að í þjóðaratkvæðagreiðslunni verði spurt hvort halda eigi aðildarviðræðum áfram og svarmöguleikar verði einfaldlega já og nei. Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, sagði að samningsstaða Íslands væri góð núna. Mikið rót væri í alþjóðamálum og Íslendingar hefðu oft nýtt tækifæri við slíkar aðstæður í heiminum. „Við teljum að akkúrat núna standi Ísland það sterkt,“ sagði forsætisráðherra. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra, sagði stefnu flokks síns skýra, hann styddi beint lýðræði og vilja þjóðarinnar. „Sá spyr sem ekki veit,“ sagði hún. „Nú ætlum við að spyrja þjóðina okkar.“ Textalýsingu af fundinum má sjá í vaktinni hér að neðan:
Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi formanna ríkisstjórnarflokkanna rétt fyrir hádegi. Fundinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan: Stjórnarráðið hefur sett sérstakan upplýsingavef um þjóðaratkvæðagreiðsluna í loftið. Þurfa að koma málinu í gegn fyrir lok maí Kveðið er á um að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fari fram í síðasta lagi á næsta ári í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna. Nýlega sagði erlendur fjölmiðill frá því að atkvæðagreiðslan gæti farið fram strax í ágúst. Samkvæmt lögum getur þjóðaratkvæðagreiðslan í fyrsta lagið farið fram þremur mánuðum eftir að Alþingi samþykkir þingsályktunartillögu þess efnis. Já eða nei? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, sagði á fundinum að í þjóðaratkvæðagreiðslunni verði spurt hvort halda eigi aðildarviðræðum áfram og svarmöguleikar verði einfaldlega já og nei. Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, sagði að samningsstaða Íslands væri góð núna. Mikið rót væri í alþjóðamálum og Íslendingar hefðu oft nýtt tækifæri við slíkar aðstæður í heiminum. „Við teljum að akkúrat núna standi Ísland það sterkt,“ sagði forsætisráðherra. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra, sagði stefnu flokks síns skýra, hann styddi beint lýðræði og vilja þjóðarinnar. „Sá spyr sem ekki veit,“ sagði hún. „Nú ætlum við að spyrja þjóðina okkar.“ Textalýsingu af fundinum má sjá í vaktinni hér að neðan:
Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Alþingi Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Sjá meira