„Láttu í þér heyra, Orri!“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2026 11:01 Orri Steinn Óskarsson syngur hér fyri framan stuðningsmenn Real Sociedad. Getty/Jose Breton Íslenski landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson söng og öll stúkan með stuðningsmönnum Real Sociedad tók undir.
Orri og félagar í Real Sociedad tryggðu sér í vikunni sæti í bikarúrslitaleiknum eftir 1-0 sigur í seinni leiknum á móti Athletic Bilbao og þar með 2-0 samanlagt. Real Sociedad mætir Atletico Madrid í úrslitaleik Konungsbikarsins sem fer fram í Sevilla 18. apríl næstkomandi. Orri skoraði eftirminnilegt sigurmark á móti Deportivo Alavés í átta liða úrslitum og er þegar kominn með fimm mörk á leiktíðinni þrátt fyrir að hafa byrjað aðeins einn leik. Orri missti af mörgum mánuðum vegna meiðsla en hefur skorað fjögur góð mörk sem varamaður eftir að hann kom til baka. Orri tók af skarið í fagnaðarlátum stuðningsmanna Real Sociedad eftir bikarleikinn, tók við hljóðnemanum og söng fyrir framan alla. Í framhaldinu tók öll stúkan undir. Það fer ekkert fram hjá neinum að íslenski framherjinn er hrókur alls fagnaðar í Sociedad. Nú standa bara níutíu mínútur á milli félagsins og fyrsta stóra titilsins síðan liðið vann bikarinn fyrir sex árum síðan. Hér fyrir neðan má sjá Orra syngja með stuðningsmönnunum eftir sigurinn á Athletic Bilbao í uppgjöri Baskafélaganna. Við myndbandið á heimsíðu félagsins stendur á spænsku: „Láttu í þér heyra, Orri!“ View this post on Instagram A post shared by Real Sociedad de Fútbol (@realsociedad)
Spænski boltinn Mest lesið Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti Fleiri fréttir Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Snýr aftur heim til Víkinga Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Sjá meira