Leita að treyju félagsins sem Madonna klæddist árið 1990 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2026 09:31 Madonna var á hápunkti frægðar sinnar þegar hún mætti á heimavöll Celta Vigo og hélt tónleika. @rccelta Spænska knattspyrnufélagið Celta Vigo hefur kallað eftir hjálp frá Madonnu og stuðningsmönnum félagsins til að binda enda á 36 ára leit sína að liðstreyjunni sem bandaríska stórstjarnan klæddist á tónleikum sínum á Balaídos-leikvanginum árið 1990.
Tónleikar Madonnu fóru fram þann 29. júlí 1990 í Vigo en þeir voru fyrstu stóru alþjóðlegu tónleikarnir í borginni og einn af síðustu viðkomustöðum poppstjörnunnar á Blond Ambition-tónleikaferðalagi hennar um Evrópu. Spænska liðið sagðist vilja endurheimta þessa „einstöku og óbætanlegu flík“ til að bæta henni í safn sitt. „Þetta kvöld klæddist listakonan Celta Vigo-treyju með númeri 5, sem var númer [fyrrverandi varnarmanns Celta, Jose Manuel] Espinosa, á bakinu,“ segir í yfirlýsingu frá félaginu. View this post on Instagram A post shared by Off The Pitch Archive™ ⚽️🌐 (@offthepitch_archive) „Þetta augnablik, sem ljósmyndarinn Víctor de las Heras fangaði, varð að táknrænni mynd í sögu félagsins og borgarinnar. Eftir tónleikana hvarf treyjan og hefur ekki sést síðan. Celta Vigo hefur nú greint frá því að félagið hafi leitað að henni í einrúmi í mörg ár en rannsóknin hafi siglt í strand. „Þrjátíu og sex árum síðar biðlar félagið nú til allra stuðningsmanna Celta Vigo um að hjálpa til við að finna treyjuna, með það í huga að bæta henni í safn sitt. Fyrir Celta Vigo er þetta einstök og óbætanleg flík sem er hluti af tilfinningalegri arfleifð þess. Af þessum sökum yrði félagið þakklátt fyrir allar viðeigandi upplýsingar um hvar treyjan sem Madonna klæddist á sviðinu á Balaídos er niðurkomin. Eftirfarandi hlekkur hefur verið settur upp til að taka við öllum upplýsingum sem tengjast flíkinni.“ Marián Mouriño, forseti Celta, hefur einnig skrifað opið bréf þar sem hún biður Madonnu um hjálp og útskýrir hvers vegna treyjan skiptir félagið svo miklu máli. „Myndin af þér í treyjunni okkar er orðin goðsagnakennd og er hluti af sögu Celta sem er einnig skrifuð utan vallar,“ skrifaði hún. View this post on Instagram A post shared by Celta (@rccelta)
Spænski boltinn Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu „Takk fyrir ástina“ Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Stóru liðin á eftir Kroupi Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Þurfti að flauta leikinn tvisvar af 303 mörk í 500 leikjum fyrir eitt félag Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet „Ef afi minn væri með hjól þá væri hann bíll“ Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Keegan með fjórða stigs krabbamein United-mennirnir skoruðu bæði í rétt og rangt mark í stórsigri Brassa Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Ancelotti tekur við liði Hákons í fjarvinnu Freyr rekinn frá Brann Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Milner hættur í fótbolta Sjá meira