Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. janúar 2026 11:56 Sweeney birti myndband af sér fara í sendiferðabíl, keyra upp að Hollywood-skiltinu og klæða það með brjóstahöldurum. Hollywood-stjarnan Sydney Sweeney gæti átt yfir höfði sér málsókn eftir að hafa klifrað í leyfisleyfi upp á Hollywood-skiltið í Los Angeles og skreytt það með brjóstahöldurum úr nýju nærfatalínunni sinni.
Sweeney hefur verið ein umtalaðasta leikkona Hollywood síðustu ára af ýmsum ástæðum. Leikið í vinsælum stórmyndum, stórum floppum og vakið athygli utan skjásins. Nýjasta mynd hennar, Housemaid, hefur fengið góðar viðtökur en hún sló fyrst í gegn í þáttunum Euphoria árið 2019 og kemur þriðja þáttaröð þeirra út í apríl. Sjá einnig: Við þurfum að ræða Sydney Sweeney Leikkonan birti myndband á Instagram-síðu sinni í gær af óvenjulegum gjörningi. Þar sem mátti sjá Sweeney fara hettupeysuklædda inn í sendiferðabíl með þýskum fjárhundi og grímuklæddum mönnum, keyra upp að Hollywood-skiltinu, laumast þar gegnum girðingu og skreyta skiltið síðan með brjóstahöldurum úr nýrri nærfatalínu hennar og milljarðamæringsins Jeff Bezos. Sweeney að störfum. „Með þessu áframhaldi verðum við gripin glóðvolg,“ segir Sweeney á einum tímapunkti í myndbandinu. Samkvæmt staðarblaðinu LA Times átti gjörningurinn sér stað án vitneskju eða leyfis verslunarráðs Hollywood (e. Hollywood Chamber of Commerce), sem eiga réttinn að kennileitinu, eða sjóðnum sem fer með umsjá skiltisins (e. The Hollywood Sign Trust). „Hver sá sem ætlar sér að nota og/eða að fá aðgang að Hollywood-skiltinu til auglýsinganota þarf að fá heimild eða leyfi frá verslunarráði Hollywood til að gera,“ sagði Steve Nissen, forstjóri verslunarráðsins í yfirlýsingu til blaðsins. View this post on Instagram A post shared by Sydney Sweeney (@sydney_sweeney) Hins vegar hafði teymi Sweeney fengið leyfi fyrir upptökum á svæðinu frá samtökunum FilmLA sem veita leyfi fyrir kvikmyndatöku í allri Los Angeles. Lögreglanog slökkviliðið í Los Angeles vaktar vanalega skiltið til að koma í veg fyrir að ferðamenn fari inn á svæðið auk þess sem það er vaktað með eftirlitsmyndavélum. Þeir sem fara inn á svæðið í leyfisleysi geta verið ákærðar og hlotið sekt upp á þúsund dali (rúmar 120 þúsund krónur) eða hlotið allt að sex mánaða fangelsisdóm. Málið hefur ekki verið tilkynnt til lögreglu en verslunarráð Hollywood segir rannsókn standa yfir á því hvernig hópurinn fékk aðgang að svæðinu. Þetta er ekki fyrsti markaðsgjörningur Sweeney sem er einkar lunkinn við að koma sér í fréttirnar. Síðasta sumar vakti hún athygli vegna þátttöku sinnar í auglýsingaherferð fyrir gallabuxur American Eagle sökum meintra rasískra undirtóna. Sjá einnig: Tjáir sig um auglýsinguna umdeildu og stuðning Trump Sweeney brást lítið við gagnrýninni en tjáði sig loks um málið í desember og gerði heldur lítið úr gagnrýninni. Þar áður hafði hún vakið athygli fyrir að selja sápu úr baðvatni sínu.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Sjá meira