Snjóbylur gæti lengt jólafrí liða í þýska boltanum Sindri Sverrisson skrifar 8. janúar 2026 18:07 Snjór hefur stundum sett strik í reikninginn í þýska fótboltanum í gegnum tíðina. Getty/Martin Rose Hætta er á því að fresta þurfi leik eða leikjum í þýsku 1. deildinni í fótbolta um helgina vegna mikillar snjókomu og fárviðris sem spáð er.
Leikur St. Pauli og RB Leipzig á laugardaginn er sérstaklega talinn í hættu og hefur St. Pauli sent frá sér tilkynningu þess efnis, þar sem segir að ekki sé hægt að tryggja að leikurinn fari fram á tilsettum tíma. Þýska veðurstofan hefur sent frá sér viðvörun um 24 klukkutíma veðurofsa á Hamborgarsvæðinu, frá föstudagsmorgni, þar sem búist er við þungri snjókomu og að stormurinn „Elli“ muni gera fólki lífið leitt. Fyrr í dag hafði þýska knattspyrnusambandið gefið út að bjartsýni ríkti um að allir níu leikirnir um helgina gætu farið fram, í fyrstu umferðinni eftir jólafrí, en talsmaður sambandsins sagði svo að svo gæti farið að leikjum í norðri og austri yrði frestað. St. Pauli spilaði vináttuleik við Werder Bremen síðasta sunnudag og það tókst þrátt fyrir snjókomuna sem verið hafði. Félagið hafði þá sent út neyðarkall til stuðningsmanna og yfir fimmtíu manns mættu til að hjálpa til við að moka snjó af vellinum og fengu þeir bakkelsi að launum. Leikur Werder Bremen við Hoffenheim og leikur Union Berlín við Mainz eru einnig taldir í hættu um helgina, vegna óveðursins. Þá er ljóst að veðrið kemur einnig til með að hafa mikil áhrif á stuðningsmenn vegna vandræða með samgöngur.
Fótbolti Þýski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira