Þegar miðborgin stóð í ljósum logum Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 11. janúar 2026 08:02 Austurstræti 2 stóð í logum ljósum. Þetta sögufræga hús var áður gamla Landsyfirréttarhúsið en hýsti skemmtistaðinn Pravda á árunum fyrir brunann. Vísir/Vilhelm Þann 18. apríl 2007 varð einn alvarlegasti eldsvoði í sögu Reykjavíkur þegar stórbruni braust út í húsnæði við Austurstræti, í hjarta miðborgarinnar. Eldurinn breiddist hratt út og olli gríðarlegum skemmdum á hluta elstu byggðar borgarinnar, á svæði sem gegnt hafði mikilvægu hlutverki í borgarlífi Reykjavíkur um áratugaskeið.
Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis var í miðborginni þennan örlagaríka dag og festi atburðina á filmu en myndirnar tók hann meðal annars þar sem hann stóð á þaki Héraðsdóms Reykjavíkur. Samkvæmt fyrstu upplýsingum kviknaði eldurinn í verslunarhúsnæði og náði fljótt tökum á fleiri húsum. Reykur og logar breiddust hratt út, þakið á Austurstræti 22 féll inn og húsin fylltust af þykkum, svörtum reyk. Fjöldi íbúa og gesta í miðbænum var fluttur á brott, meðal annars af nærliggjandi hótelum, þar sem reykskynjarar og brunavarnarkerfi fóru í gang.Vísir/Vilhelm Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallaði strax til mikinn mannskap og naut aðstoðar frá öðrum slökkviliðsdeildum. Slökkvistarfið reyndist bæði erfitt og hættulegt.Vísir/Vilhelm Reykarmökkur lá yfir miðborginni. Reykurinn frá brunanum barst alla leið að Stúdentagörðum Háskóla Íslands í Skerjafirði og lögreglan bað íbúa í nágrenni við brunann um að loka gluggum og gera aðrar ráðstafanir eins og að kynda íbúðir sínar vel upp.Vísir/Vilhelm Slökkviliðsmenn unnu við afar krefjandi aðstæður, meðal annars inni í brennandi húsum þar sem hrunið var yfirvofandi.Vísir/Vilhelm Slökkvistarf stóð langt fram undir næsta morgun, þar sem markmiðið var ekki aðeins að ráða niðurlögum eldsins, heldur einnig að koma í veg fyrir að hann breiddist enn frekar út í þéttan byggðarkjarnann.Vísir/Vilhelm Mannfjöldinn safnaðist saman og fylgdist með störfum slökkviliðsins.Vísir/Vilhelm Þrátt fyrir umfang brunans urðu engin manntjón. Vísir/Vilhelm Reykurinn var svo mikill að hann sást víða úr borginni, þó hann hefði ekki áhrif á flugumferð frá Reykjavíkurflugvelli.Vísir/Vilhelm Eldurinn breiddist um húsin á horninu við Lækjargötu, Lækjargötu 2 þar sem Kebabhúsið var meðal annars til húsa, og Austurstræti 22 þar sem skemmtistaðurinn Pravda var til húsa og húsið þar á milli sem hýsti upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og þar áður söluturninn Fröken Reykjavík.Vísir/Vilhelm Lögregla og slökkvilið fengu lof fyrir fumleysi og fagmennsku við rýmingu, umferðastjórnun og samhæfingu aðgerða.Vísir/Vilhelm Hornhúsið við Lækjargötu 2 sem skemmdist mikið var reist árið 1852. Þar voru meðal annars veitingastaðurinn Café Ópera, ölstofan Café Rósenberg og skyndibitastaðurinn Kebabhúsið.Vísir/Vilhelm Að loknum aðgerðum slökkviliðsins blasti sorgleg sjón við í miðbænum. Fjöldi húsa var annaðhvort stórskemmdur eða ónýtur, og spurningar vöknuðu strax um framtíð götunnar og enduruppbyggingu. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson þáverandi borgarstjóri og Stefán Eiríkisson þáverandi lögreglustjóri ræða málin.Vísir/Vilhelm Lækjargata 2 brann að hluta en húsið að Austurstræti 22 brann til kaldra kola. Bæði þessi hús eiga stóran sess í sögu Reykjavíkur.Vísir/Vilhelm Ljóst var að mikið menningarlegt og sögulegt tap hafði orðið, þar sem bruninn lagðist þungt á elsta húsakost Reykjavíkur. Stórbruninn í apríl 2007 markaði tímamót í umræðu um brunavarnir, varðveislu gamalla húsa og mikilvægi miðborgarinnar sem lifandi sögusviðs.Vísir/Vilhelm Atburðurinn situr enn í minni borgarbúa sem áminning um viðkvæmni byggðarinnar, og samstöðu samfélagsins þegar á reynir.
Einu sinni var... Slökkvilið Reykjavík Ljósmyndun Myndasögur Vilhelms Tengdar fréttir Eldgosið sem lýsti upp næturhiminninn og lamaði Evrópu Óhætt er að fullyrða að enginn einn atburður í sögunni hafi gert garð Íslands eins og frægan og eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010. Öskugosið í toppgígnum ógnaði sveitabyggðinni við rætur fjallsins og raskaði flugumferð í Evrópu vikum saman. En gosið var jafnframt mikið sjónarspil, eins og sést á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af Vilhelm Gunnarssyni, ljósmyndara Vísis, nokkrum dögum eftir að sprengigos hófst undir jökli í Eyjafjallajökli sjálfum. 4. janúar 2026 09:02 Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Mikill harmleikur átti sér stað í ágústmánuði árið 2007 þegar tveir þýskir ferðamenn týndust á Svínafellsjökli. Í fimm daga stóðu yfir umfangsmiklar aðgerðir þar sem á þriðja hundrað björgunarsveitarmanna leituðu mannanna, en án árangurs. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fylgdi björgunarsveitarmönnunum eftir á fjórða og fimmta degi leitarinnar, í stórbrotnu umhverfi Svínafellsjökuls. 21. desember 2025 10:01 Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Seint í nóvember árið 2004 átti sér stað einhver mesti bruni sem orðið hafði á höfuðborgarsvæðinu í áratugi. Þá kviknaði í gríðarlegum dekkja- og spilliefnahaug á athafnasvæði förgunarfyrirtækisins Hringrásar við Sundahöfn. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á svæðinu þessa nótt og festi á filmu baráttu slökkviliðsmannanna við eldinn. 14. desember 2025 08:00 Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Aðfaranótt 19. desember 2006 strandaði flutningaskipið Wilson Muuga við Hvalsnes sunnan við Sandgerði. Skipið, sem var alls 5700 lestir, var að koma frá Grundartanga á leið til Murmansk eftir að hafa losað kvarts. 7. desember 2025 08:03 Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Fleiri fréttir Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Sjá meira
Eldgosið sem lýsti upp næturhiminninn og lamaði Evrópu Óhætt er að fullyrða að enginn einn atburður í sögunni hafi gert garð Íslands eins og frægan og eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010. Öskugosið í toppgígnum ógnaði sveitabyggðinni við rætur fjallsins og raskaði flugumferð í Evrópu vikum saman. En gosið var jafnframt mikið sjónarspil, eins og sést á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af Vilhelm Gunnarssyni, ljósmyndara Vísis, nokkrum dögum eftir að sprengigos hófst undir jökli í Eyjafjallajökli sjálfum. 4. janúar 2026 09:02
Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Mikill harmleikur átti sér stað í ágústmánuði árið 2007 þegar tveir þýskir ferðamenn týndust á Svínafellsjökli. Í fimm daga stóðu yfir umfangsmiklar aðgerðir þar sem á þriðja hundrað björgunarsveitarmanna leituðu mannanna, en án árangurs. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fylgdi björgunarsveitarmönnunum eftir á fjórða og fimmta degi leitarinnar, í stórbrotnu umhverfi Svínafellsjökuls. 21. desember 2025 10:01
Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Seint í nóvember árið 2004 átti sér stað einhver mesti bruni sem orðið hafði á höfuðborgarsvæðinu í áratugi. Þá kviknaði í gríðarlegum dekkja- og spilliefnahaug á athafnasvæði förgunarfyrirtækisins Hringrásar við Sundahöfn. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á svæðinu þessa nótt og festi á filmu baráttu slökkviliðsmannanna við eldinn. 14. desember 2025 08:00
Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Aðfaranótt 19. desember 2006 strandaði flutningaskipið Wilson Muuga við Hvalsnes sunnan við Sandgerði. Skipið, sem var alls 5700 lestir, var að koma frá Grundartanga á leið til Murmansk eftir að hafa losað kvarts. 7. desember 2025 08:03