Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 7. desember 2025 08:03 Björgunarsveitarmenn unnu mikið þrekvirki í desember fyrir nítján árum. Björgunaraðgerðir gengu þó langt í frá slysalaust fyrir sig. Vísir/Vilhelm Aðfaranótt 19. desember 2006 strandaði flutningaskipið Wilson Muuga við Hvalsnes sunnan við Sandgerði. Skipið, sem var alls 5700 lestir, var að koma frá Grundartanga á leið til Murmansk eftir að hafa losað kvarts.
Veður var slæmt þessa nótt og var skipið komið inn fyrir skerjafláka undan landi. Þá voru veðuraðstæður mjög slæmar á strandstað, vaxandi straumur, áhlaðandi og mikill vindur. Beiðni um dráttarbát barst frá skipinu seint um nótt. Skipstjórinn tilkynnti strandið til Vaktstöðvar siglinga og Stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar sem kallaði til varðskip sín og þyrlur og önnur skip á svæðinu og kom boðum til lögreglu og björgunarsveita. Þegar Vilhem Gunnarsson ljósmyndari Vísis mætti á svæðið lá skipið í fjörunni.Vísir/Vilhelm Í fyrstu var ekki vitað hvar skipið hafði strandað en björgunarskip voru send út bæði frá Sandgerði og Grindavík. Skipið fannst svo langt uppi í fjöru við Hvalsneskirkju en fjórtán manns voru í áhöfn. Viðbragðsaðilar settu upp aðstöðu við Hvalsneskirkju en þaðan sást vel yfir strandstaðinn. Danska strandgæsluskipið Triton fór til aðstoðar en átta áhafnarmeðlimir af Triton fóru út á bát til þess að freista þess að aðstoða áhöfn flutningaskipsins. Það endaði með skelfingu þegar bátnum hvolfdi og þeir féllu allir útbyrðis. Sjö þeirra var bjargað með ævintýralegum hætti úr öldum sem voru á hæð við þriggja hæða hús og vann þyrlusveit Landshelgisgæslunnar þar mikið afrek. Sá áttundi, Jan Nordskov Larsen, var látinn þegar að var komið og var tekinn um borð í þyrluna síðar um morguninn. „Þegar ég er kom um átta leytið var skítaveður, rok og rigning, og björgunarsveitarmennirnir voru að græja sig,“ rifjar Vilhelm upp.Vísir/Vilhelm Í mars 2007 tilkynnti umhverfisráðherra að samkomulag hefði náðst við eigendur skipsins um að fjarlægja það af strandstað og var skipið dregið á haf út þann 17. apríl 2007. „Skítaveður“ og erfiðar aðstæður Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var ræstur út eldsnemma þennan morgun og myndaði aðgerðir á vettvangi, þegar áhöfninni af Wilson Muuga var komið í land. Átta manna áhöfnin frá Tríton hafði þá þegar hvolft bátnum. Allar björgunarsveitir á Suðurnesjum höfðu verið kallaðar út og þá var óskað eftir aðstoð björgunarsveita af höfuðborgarsvæðinu með mesta forgangi. Björgunarsveitarmenn koma línu yfir í skipið.Vísir/Vilhelm TF SIF, þyrla Landshelgisgæslunnar hífur einn af skipbrotsmönnunum upp úr skipinu.Vísir/Vilhelm Voru allir um borð, 12 menn, frá Rússlandi, Úkraínu og Póllandi fluttir í land með þyrlu Landhelgisgæslunnar.Vísir/Vilhelm Aðstæðurnar voru afar erfiðar þennan dag þar sem háir brimgarðar læstu skipið inni.Vísir/Vilhelm Skipstjórinn og stýrmimaðurinn voru fluttir til baka í skipið til að kanna aðstæður.Vísir/Vilhelm Um borð í skipinu voru 145 tonn af svartolíu og 33 tonn af annarri olíu. Var í upphafi óttast að olía úr skipinu gæti komist út í umhverfið og valdið mengunarslysi og var strax hafist handa við að gera ráðstafanir til að fjarlægja olíuna úr skipinu. Tókust þær aðgerðir giftusamlega og lítil olía komst út í umhverfið og olli hverfandi skaða. Vilhelm smellti þessari mynd af á meðan hreinsunaraðgerðirnar stóðu yfir.Vísir/Vilhelm „Þarna er skipið komið á flot aftur. Þegar þeir byrjuðu að toga þá voru þeir það fljótir að ná því á flot að ég missti næstum af því. Ég þurfti að hlaupa út í fjöru til að ná þessu á mynd. Fimm mínútum seinna var skipið farið,“ rifjar Vilhelm upp.Vísir/Vilhelm
Ljósmyndun Einu sinni var... Björgunarsveitir Suðurnesjabær Reykjanesbær Myndasögur Vilhelms Tengdar fréttir Hvorki síldarævintýri né gervigreind Það mætti halda að myndin hér að ofan væri unnin af gervigreind en ekki tekin af ljósmyndara Fréttablaðsins og Vísis snemma árs 2013. Þá varð sá fordæmalausi atburður að ríflega 35 þúsund tonn af síld drápust í Kolgrafafirði. Ástæðan var súrefnisþurrð. Fullur fjörður af síld en alls enginn ævintýrabragur. 30. nóvember 2025 08:01 Þegar Dorrit var forsetafrú Þegar Dorrit Moussaieff varð forsetafrú Íslands árið 2003 markaði hún upphafið að einni litríkustu forsetafrúartíð sem landið hefur séð. Dorrit, sem var fædd í Ísrael og uppalin í London, kom inn á Bessastaði með alþjóðlegan blæ og ólíkari orku en Íslendingar höfðu áður vanist. 23. nóvember 2025 09:00 Þegar allt sauð upp úr Sautján ár eru nú liðin síðan búsáhaldabyltingin náði hámarki sínu þegar Alþingi kom saman til fundar í fyrsta sinn eftir sérstakt jólafrí. Þremur mánuðum fyrr höfðu íslensku bankarnir fallið hver á fætur öðrum. 16. nóvember 2025 09:00 Mest lesið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Sjá meira
Hvorki síldarævintýri né gervigreind Það mætti halda að myndin hér að ofan væri unnin af gervigreind en ekki tekin af ljósmyndara Fréttablaðsins og Vísis snemma árs 2013. Þá varð sá fordæmalausi atburður að ríflega 35 þúsund tonn af síld drápust í Kolgrafafirði. Ástæðan var súrefnisþurrð. Fullur fjörður af síld en alls enginn ævintýrabragur. 30. nóvember 2025 08:01
Þegar Dorrit var forsetafrú Þegar Dorrit Moussaieff varð forsetafrú Íslands árið 2003 markaði hún upphafið að einni litríkustu forsetafrúartíð sem landið hefur séð. Dorrit, sem var fædd í Ísrael og uppalin í London, kom inn á Bessastaði með alþjóðlegan blæ og ólíkari orku en Íslendingar höfðu áður vanist. 23. nóvember 2025 09:00
Þegar allt sauð upp úr Sautján ár eru nú liðin síðan búsáhaldabyltingin náði hámarki sínu þegar Alþingi kom saman til fundar í fyrsta sinn eftir sérstakt jólafrí. Þremur mánuðum fyrr höfðu íslensku bankarnir fallið hver á fætur öðrum. 16. nóvember 2025 09:00