Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Valur Páll Eiríksson skrifar 17. desember 2025 19:54 Safonov ver eina af fjórum vítaspyrnum sínum í kvöld. Jan Kruger - FIFA/FIFA via Getty Images Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru Álfubikarmeistari FIFA í fótbolta eftir sigur á Suður-Ameríkumeisturum Flamengo í úrslitaleik í Katar. Markvörður PSG varði fjórar spyrnur í vítakeppni sem úkljáði úrslitin.
Um var að ræða fyrsta leik PSG í keppninni en Evrópumeistarar fá sæti í úrslitaleiknum. Suður-Ameríkumeistarar Flamengo höfðu unnið Norður-Ameríkumeistara Cruz Azul frá Mexíkó og Afríkumeistara Pyramids FC frá Egyptalandi til að komast í úrslitin. Leikur kvöldsins var lokaður en Georgíumanninum Kvicha Kvaratskhelia tókst að brjóta ísinn fyrir Parísarliðið með vinstri fótar skoti sem hafnaði í markinu á 38 . mínútu. 1-0 stóð þar til rúmur stundarfjórðungur var liðinn af síðari hálfleik þegar Brassinn Marquinhos braut af sér innan teigs og Flamengo fékk vítaspyrnu. Ítalski Brassinn Jorginho, fyrrum leikmaður Arsenal og Chelsea, steig á punktinn og skoraði. Staðan var 1-1 eftir 90 mínútna leik og framlengja þurfti. Ekkert var skorað í framlengingu og vítaspyrnukeppni tók við. Þar reyndist rússneski markvörðurinn Matvey Safonov hetja Parísarliða er hann varði heilar fjórar vítaspyrnur. PSG vann vítakeppnina 2-1 og er því Álfubikarmeistari FIFA.
Franski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira