Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. desember 2025 08:01 Bruno Fernandes skoraði eitt mark og lagði upp annað gegn Bournemouth. getty/Carl Recine Einn skemmtilegasti leikur tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni fór fram á Old Trafford í gær þar sem Manchester United og Bournemouth gerðu 4-4 jafntefli.
United var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddi, 2-1, að honum loknum. Amad Diallo kom heimamönnum yfir á 13. mínútu en Antoine Semenyo jafnaði á 40. mínútu. Þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik náðu Rauðu djöflarnir forystunni á nýjan leik þegar Casemiro skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu Brunos Fernandes. Bournemouth byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og strax á upphafsmínútu hans jafnaði Evanilson. Á 52. mínútu kom Marcus Tavernier gestunum svo yfir með skoti beint úr aukaspyrnu. Fernandes vildi ekki vera minni maður og jafnaði með skoti beint úr aukaspyrnu á 77. mínútu. Skömmu síðar kom Matheus Cunha United yfir. Adam var þó ekki lengi í paradís því Frakkinn ungi, Eli Junior Kroupi, jafnaði sex mínútum fyrir leikslok, 4-4. Bournemouth fékk tvö góð færi undir lokin til að tryggja sér sigurinn en markvörðurinn Senne Lammens kom United til bjargar. Klippa: Man. Utd. - Bournemouth 4-4 Eftir leikinn í gær er United í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 26 stig. Crystal Palace, Liverpool og Sunderland eru með jafn mörg stig. Bournemouth er í 13. sætinu með 21 stig. Mörkin átta úr leiknum ótrúlega í gær má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Manchester United AFC Bournemouth Tengdar fréttir Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur „Þetta var skemmtilegur leikur fyrir alla heima,“ sagði Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, eftir 4-4 jafnteflið við Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 15. desember 2025 22:56 Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Manchester United og Bournemouth gerðu 4-4 jafntefli í ótrúlegum leik á Old Trafford í kvöld, í lokaleik 16. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. 15. desember 2025 21:55 Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Sjá meira
Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur „Þetta var skemmtilegur leikur fyrir alla heima,“ sagði Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, eftir 4-4 jafnteflið við Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 15. desember 2025 22:56
Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Manchester United og Bournemouth gerðu 4-4 jafntefli í ótrúlegum leik á Old Trafford í kvöld, í lokaleik 16. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. 15. desember 2025 21:55