„Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. desember 2025 07:30 Alexander Isak hefur staðið í skugga Hugos Ekitike það sem af er tímabili. getty/Liverpool FC Sérfræðingar Sunnudagsmessunnar eru hrifnir af Hugo Ekitike og telja farsælla að hann byrji inn á í framlínu Liverpool frekar en Alexander Isak.
Ekitike skoraði bæði mörk Liverpool í sigrinum á Brighton á Anfield á laugardaginn, 2-0. Frakkinn hefur skorað fjögur mörk í síðustu tveimur deildarleikjum Rauða hersins. Kjartan Henry er hrifinn af því hversu beinskeyttur Ekitike er. „Það er ótrúlegur kraftur í honum. Mér fannst ég líka sjá, sérstaklega eftir að [Mohamed] Salah kom inn á, að hann er rosalega eigingjarn. Hann sér bara markið og skýtur á markið og það er ekkert alltaf sem liðsfélagarnir eru í skýjunum með ákvarðanatökurnar,“ sagði Kjartan Henry í Sunnudagsmessunni í gær. Klippa: Messan - umræða um Ekitike og Isak „Hann skapar líka pláss fyrir aðra. Hann er mjög hreyfanlegur. Hann fær að hlaupa um völlinn og þessi skrefalengd hjá honum; hann stingur þessa gæja bara af.“ Liverpool keypti Isak fyrir metverð í haust en sænski framherjinn hefur ekki fundið fjölina sína með Englandsmeisturunum. Klaufalegt hjá Slot Bjarni Guðjónsson myndi frekar veðja á Ekitike en Isak eins og staðan er núna en gagnrýndi Arne Slot, knattspyrnustjóra Liverpool, fyrir hvernig hann notaði Isak fyrst eftir að hann kom frá Newcastle. „Mér fannst hann fara klaufalega að því þegar Isak kemur. Þá er verið að tala um að leikmaður sem var keyptur á 125 milljónir punda sé ekki í leikformi, hann þurfi að æfa sig og koma sér í form. Þarna áttu bara að henda honum beint í liðið og leyfa honum að spila sig inn í það,“ sagði Bjarni. „Úr því sem komið er upp hjá Liverpool núna, staðan eins og hún er núna, með Ekitike eins og hann er, áttu þá að fórna honum til að vonast til að hinn komist í gang? Það er erfitt. Ég er ekkert endilega viss um að Isak sé endilega, og sérstaklega ekki með sjálfstraustið eins og það er núna, mikið framar honum. Ég sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar verði áfram á bekknum.“ Ekitike er markahæsti leikmaður Liverpool á tímabilinu með tíu mörk í öllum keppnum. Isak hefur aftur á móti aðeins skorað tvö. Liverpool, sem er ósigrað í fjórum deildarleikjum í röð, er í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 26 stig eftir sextán leiki. Innslagið úr Messunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Messan Liverpool FC Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Sjá meira