Ummæli Þórunnar dapurleg Lovísa Arnardóttir skrifar 8. desember 2025 21:01 Guðrún segir nú traust til forseta þingsins brostið. Vísir/Vilhelm Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins segir ummæli Þórunnar Sveinbjarnardóttur, þingkonu Samfylkingar og forseta þingsins, um stjórnarandstöðuna sorgleg og rýra hana trausti. „
Óendanlega sorgleg ummæli,“ segir Guðrún í samtali við Vísi um ummæli Þórunnar á föstudag en þá heyrðu nærstaddir hana segja eftir að hún tók hlé á þingfundi: „Ég er komin með nóg. Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk.“ Þórunn baðst afsökunar á laugardag og sagðist mannleg, eins og annað fólk. „Það var hvort tveggja óheppilegt og miður að þessi orð skyldu falla á leið minni út úr þingsalnum í gær og ástæða til að biðjast afsökunar á þeim,“ skrifaði hún í skriflegri yfirlýsingu til Vísis. Hún vildi ekki veita viðtal. „Mér finnst þau afskaplega dapurleg og mér finnst alveg ólýsanlega sorglegt að hafa orðið vitni að því hvaða skoðun hún hefur á okkur þingmönnum stjórnarandstöðu,“ segir Guðrún um þessi orð. Þyrfti hún eiginlega að segja af sér sem forseti? „Ég ætla nú ekki að vera dómari í þeirri sök en þetta er það sem við höfum verið að tala um, við þingmenn stjórnarandstöðunnar. Þetta er auðvitað ekki til þess að byggja traust á milli og það er hlutverk forseta að byggja traust og trú milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Og það er algjörlega brostið.“
Alþingi Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Lést í sprengingunni Innlent Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Innlent Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Innlent Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Innlent Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Innlent Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Innlent Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Veður Íhugar að draga úr hernaði í Íran Erlent Robert Mueller er látinn Erlent Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Innlent Fleiri fréttir Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Atvinnurekendur farnir að nota gervigreind til að sía umsóknarflóðið Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Veittu ferðamönnum í vanda aðstoð við Héðinsfjarðargöng Rannsókn á banaslysinu í Fóðurblöndunni gæti tekið vikur og jafnvel mánuði Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Slysið í Fóðurblöndunni, möguleg afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu og enn meira óveður Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fríhöfnin gjörsamlega galtóm „Auðvitað mikið áfall“ Sprengingin hjá Fóðurblöndunni og áhyggjur af stríðinu í Íran Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Öllu flugi dagsins aflýst Öflug sprenging í Korngörðum og vonskuveður víða Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Sjá meira