Með byssu í stærstu verslunarmiðstöð Oslóar Samúel Karl Ólason skrifar 8. desember 2025 10:25 Lögregluþjónar að störfum í Osló. Myndin tengist fréttinni ekki beint. EPA/Jonas Fæste Laksekjon Lögreglan í Osló hefur handtekið mann sem sagður er hafa mætt með skotvopn í verslunarmiðstöðina Storo, þá stærstu í borginni, og hleypt þar af allavega einu skoti. Maðurinn mun hafa verið handtekinn en fólk hefur verið beðið um að halda sig fjarri verslunarmiðstöðinni í bili.
Ekki er vitað til þess að einhvern hafi sakað. Í frétt norska ríkisútvarpsins segir að mjög mikill viðbúnaður sé í og við Storo og að þyrlu sé flogið þar yfir. Ekki sé talið að fleiri en einn maður hafi brotið af sér í verslunarmiðstöðinni og er búið að rýma hana. Maðurinn sem var handtekinn er sagður vera ungur og á hann að hafa sjálfur haft samband við lögregluna. Hann mun hafa verið vopnaður haglabyssu og er sagður hafa skotið upp í loftið. Yfirmaður lögreglunnar á svæðinu sagði NRK að svo virtist sem að maðurinn hefði ekki ætlað að skaða neinn. NRK hefur eftir vitni að maðurinn hafi gengið inn í verslunarmiðstöðina með byssu í höndunum og að fólk hafi hlaupið undan honum. Ekki liggur fyrir hvers konar byssu var um að ræða.
Noregur Erlend sakamál Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Sjá meira