Stefán Ingi með tvö mörk og er í baráttu um gullskóinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2025 18:56 Stefán Ingi Sigurðarson er einn heitasti framherjinn í norsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. andefjordfotball.no Stefán Ingi Sigurðarson var á skotskónum með Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en það fór ekki vel fyrir Íslendingaliðinu Brann á sama tíma.
Stefán Ingi hefur verið sjóðheitur í sumar og hann öðrum fremur tryggði Sandefjord 6-2 útisigur á Strömsgodset. Stefán skoraði tvö mikilvæg mörk í fyrri hálfleiknum en liðið keyrði svo yfir heimamenn í þeim síðari. Stefán Ingi kom Sandefjord í 1-0 á 2. mínútu en heimamenn Strömsgodset svöruðu með marki. Evangelos Patoulidis kom Sandefjord í 2-1 á 27. mínútu. Þannig var staðan þar til að Stefán kom Sandefjord tveimur mörkum yfir á 34. mínútu. Strömsgodset minnkaði muninn í uppbótatíma fyrri hálfleiks en Jacob Hanstad skoraði fjórða mark Sandefjord á 71. mínútu. Sandefjord bætti síðan við tveimur mörkum í lokin eftir að Stefán fór af velli. Þetta voru langþráð mörk hjá okkar manni en Stefán hafði ekki skorað í síðustu fjórum leikjum. Þessi tvö mörk þýða samt að hann er nú aðeins tveimur mörkum frá efsta sætinu í baráttunni um markakóngstitilinn. Stefán Ingi hefur skorað fimmtán mörk í 26 deildarleikjum á þessu tímabili. Sandefjord er komið upp í fimmta sæti deildarinnar eftir þennan sigur. Íslendingaliðið Brann varð að sætta sig við 4-0 skell á útivelli á móti Molde. Lærisveinar Freys Alexanderssonar voru reyndar í jafnri stöðu í hálfleik en fengu á sig þrjú mörk frá 54. til 75. mínútu. Mörk Molde skoruðu Emil Breivik, Oskar Spiten-Nysæter og Samukelo Kabini. Breivik skoraði fyrsta markið og lagði síðan upp næstu tvö. Sondre Milian Granaas skoraði fjórða markið í uppbótatíma. Eggert Aron Guðmundsson var í byrjunarliði Brann. Brann er í fjórða sæti deildarinnar en hefði komist upp í það þriðja með sigri.
Norski boltinn Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir „stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ Sjá meira