Afar óvænt tap þegar Finnar hylltu goðsögn Sindri Sverrisson skrifar 14. nóvember 2025 19:03 Það duldist engum að áhorfendur í Helsinki vildu fá að sjá Teemu Pukki spila sinn síðasta mótsleik í kvöld. EPA/PIRJO TUOMINEN Finnar eru að kveðja sinn mesta markaskorara frá upphafi en fengu hins vegar ekki að fagna neinu marki í Helsinki í kvöld, í afar óvæntu 1-0 tapi gegn Möltu í undankeppni HM í fótbolta.
Þetta var síðasti mótsleikur markahróksins Teemu Pukki fyrir finnska landsliðið. Þessi fyrrverandi framherji liða á borð við Norwich, Bröndby, Celtic og Schalke hefur alls skorað 42 mörk fyrir finnska landsliðið, í 132 leikjum. Nafn hans var reglulega sungið á Ólympíuleikvanginum í Helsinki í kvöld en stuðningsmenn fengu þó aðeins að sjá hann spila síðustu tólf mínúturnar. Hinn eiginlegi kveðjurleikur Pukki, sem er 35 ára, verður á mánudaginn þegar Finnar mæta Andorra í vináttulandsleik. Skömmu eftir að Pukki kom inn á skoruðu Maltverjar eina mark leiksins, þegar Jake Grech skoraði með fínu skoti. Gestirnir fögnuðu svo ákaft þegar flautað var til leiksloka enda um að ræða fyrsta sigur þeirra í undankeppninni. Þar með er endanlega ljóst að Finnar enda í 3. sæti G-riðils því þetta var þeirra síðasti leikur. Þeir enduðu með tíu stig og eru fimm stigum á undan Möltu sem á einn leik eftir. Holland (16 stig) og Pólland (13 stig) enda í efstu tveimur sætum G-riðilsins en þau lið mætast í hörkuleik í Póllandi í kvöld. Markatala Hollands er hins vegar 13 mörkum betri og þarf því margt að gerast til að Hollendingar endi ekki efstir þegar riðlakeppninni lýkur á mánudaginn.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira