Sport

Stólarnir komust ekki heim og æfa í Grinda­vík fyrir stórleikinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnar Guðjónsson þegar hann var kynntur sem nýr þjálfari Tindastóls í sumar. 
Arnar Guðjónsson þegar hann var kynntur sem nýr þjálfari Tindastóls í sumar.  vísir/arnar

„Þetta verður bara gaman og það er gott að koma á Hlíðarenda og keppa við mjög sterkt lið sem er búið að vera eitt af sterkustu liðum landsins undanfarin ár,“ segir Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls fyrir stórleikinn gegn Val í Bónusdeild karla í kvöld.

Leikurinn átti upphaflega að fara fram á laugardaginn. Stólarnir voru aftur á móti að keppa í Evrópukeppni í Bratislava í síðustu viku og festust á leiðinni heim í München vegna drónaumferðar á flugvellinum. Stólarnir unnu sigur í fyrsta leik sínum í Evrópudeildinni í körfubolta á Slovan Bratislava í Slóvakíu á miðvikudag. Arnar vill meina að liðið sé samt sem áður ekki komið lengra í sínum undirbúningi fyrir tímabilið þrátt fyrir þátttökuna í Evrópukeppninni.

„Við náðum ekkert að byrja æfa fyrr. Við vorum með stráka í landsliðsverkefnum og stráka sem voru að klára einhverja túra á frystitogurum. Við komum aðeins seinna saman en við hefðum viljað,“ segir Arnar og heldur áfram.

„Við vorum fastir í tvo sólarhringa í München og við fórum tvisvar upp í vél og aftur upp á eitthvað hostel. Það var bara svona eins og það var og ekkert sem þarf að væla yfir. Það er örugglega fólk sem hefur það mikið verra en við en að vera fastir í München yfir októberfest. Við náðum einni mjög góðri æfingu í München en svo erum við svo heppnir að Grindvíkingar hafa gefið okkur afnot af íþróttahúsinu í Grindavík og ég er núna að keyra frá Selfossi Suðurstrandarveginn á leiðinni á morgunæfingu í Grindavík,“ segir Arnar að lokum en leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn Sport klukkan 19:15 og gerður upp í Körfuboltakvöldi Extra klukkan 22:35.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×