Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Jón Þór Stefánsson skrifar 4. október 2025 12:35 Skjáskot úr myndböndum af vettvangi. Maður sem er grunaður um íkveikju í fjölbýlishúsi við Grænásbraut í Ásbrú í sumar viðurkennir að hafa lagt eld að eldfimu efni í stundarbrjálæði í ölvunarástandi.
Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði á hendur manninum frá því í lok júlímánaðar, rúmri viku eftir að eldurinn kviknaði. Héraðsdómur féllst á að hann myndi sæta gæsluvarðhaldi, en Landsréttur felldi úrskurðinn úr gildi. Lögreglu barst tilkynning um málið um hálffimmleytið aðfaranótt sunnudagsins 13. júlí. Svo virðist sem strax hafi leikið á grunur að um íkveikju væri að ræða. Mögulega sígarettustubbur Í úrskurðinum kemur fram að lögreglumenn hafi verið fljótir á vettvang. Þegar þá bar að garði hafi íbúar húsnæðisins verið komnir út, en þeir farið inn í húsið til að tryggja að enginn væri þar inn. Þegar þeir hafi opnað hurðina að íbúðinni þar sem eldurinn var hafi dökkur reykur komið úr henni. Í kjölfarið hafi slökkviliðið komið á vettvang og hafið að slökkva eldinn. Lögreglumenn ræddu við íbúa íbúðarinnar þar sem eldurinn var, en það er sá sem er grunaður um íkveikjuna. Hann er sagður hafa verið ósamvinnuþýður. Það hafi til að mynda tekið langan tíma að fá hann til að gefa upp persónuupplýsingar. Maðurinn hafi sagt að hann vissi ekki hvað hefði gerst, en mögulega hefði kviknað í gólfi hússins út frá sígarettustubbi. Hann sagðist þó ekki vita hvers vegna gólfið væri eldfimt. Sagðist hafa hellt niður bensíni og kveikt í Íbúi annarrar íbúðar fjölbýlishússins sagðist hafa fundið mikla reyklykt og bensínlykt um nóttina. Hann hafi hringt á neyðarlínuna klukkan 04:35. Síðan hafi hann opnað fram á gang og séð nágranna sinn, grunaða brennuvarginn, sem hafi sagt við sig að hann hafi hellt niður bensíni og kveikt í íbúðinni. Þar á eftir hafi hann opnað hurðina að íbúðinni sinni og mikill svartur reykur blossað út á gang. Annar íbúi sagðist hafa heyrt þónokkur læti í fjölbýlishúsinu um tuttugu til þrjátíu mínútum áður en lögreglan kom á vettvang. Svo hafi hljómað sem mikið hafi verið sparkað í dyr íbúa, meðal annars hans eigin. Hann sagðist telja að maðurinn sem grunaður er í málinu hafi verið þar að verki. Hann var handtekinn skömmu eftir að klukkan gekk fimm um nóttina, grunaður um íkvekju. Fram kemur að áfengisþef hafi borist frá vitum hans. Hann blés og sýndi áfengismælir að hann væri undir áhrifum. Þá mun honum hafa verið birt upplýsingablað handtekna, en hann neitað að skrifa undir það. Búinn að stafla munum í bálköst Slökkviliðið lauk störfum tæpum tveimur klukkustundum eftir að útkallið barst. Varðstjóri slökkviliðsins mun hafa tjáð lögreglu að ummerki bentu til íkveikju á tveimur stöðum í íbúð mannsins, annars vegar í stofunni og hins vegar inni á baðherbergi. Búið hafi verið að stafla handklæðum í hrúgu inni á baði, bensínlykt verið af þeim. Og inni í stofu hafi verið búið að stafla munum í bálköst og að öllum líkindum hefði bensín verið notað til að kveikja í. Í kjölfarið rannsakaði tæknideild lögreglunnar vettvang. Fyrstu niðurstöður hennar voru á þann veg að þarna hefði verið íkveikja af mannvöldum af ásetningi með opnum eldi og eldhvetjandi vökva. Það væri eina rökrétta skýringin á brunaferlum og eldsummerkjum. Stundarbrjálæði í ölvunarástandi Síðdegis þennan sama dag tók lögreglan aftur skýrslu af hinum grunaða. Hann sagði að í aðdraganda eldsupptakana hefði hann drukkið rútu af bjór. Þá hefði hann keypt bensín fyrir sláttuvél nokkrum dögum áður. Hann sagðist hafa geymt bensínbrúsann vanalega inni í þottahúsi, en í þetta skipti hefði hann verið í stofunni. Maðurinn sagðist hafa sparkað brúsanum þannig að bensín hefði sullast niður. Hann hafi síðan tekið upp kveikjara og lagt við bensínblautt borð í stofunni. Þá hafi eldur blossað hratt upp og hann haft samband við neyðarlínuna og látið nágranna vita af eldinum. Aðspurður mun hann hafa sagt að hann hafi lagt eldinn að bensínblauta borðinu í sundarbrjálæði í ölvunarástandi. Fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að til rannsóknar sé hvort að með meintum brotum mannsins hafi hann skapað almannahættu. Það er ef bersýnilegur lífsháski hafi orðið að verknaðinum, eða að augljós hætta hafi verið á yfirgripsmikilli eyðingu á eignum annarra manna. Eftir að málið kom upp var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald í örfáa daga. Að því loknu fór lögreglustjórinn á Suðurnesjum fram á áframhaldandi gæsluvarðhald um eina viku. Héraðsdómur Reykjanes féllst á það, en ekki Landsréttur sem felldi úrskurðinn úr gildi.
Slökkvilið Lögreglumál Dómsmál Reykjanesbær Mest lesið Íslendingur handtekinn á EM Innlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Hljóp á sig Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fleiri fréttir Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Sjá meira