Toppbaráttan í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er æsispennandi. Fyrir leiki helgarinnar voru erkifjendurnir Barcelona og Real Madrid með jafn mörg stig á toppi deildarinnar og Atletcio Madrid í þriðja sætinu einu stigi á eftir.
Af þessum þremur liðum var það Atletico sem átti fyrsta leik í umferðinni. Liðið mætti í dag Valencia á útivelli og gerði heldur betur góða ferð á Mestalla leikvanginn og vann 3-0 sigur.
Julian Alvarez skoraði tvö fyrstu mörk gestanna í dag, það fyrra á 12. mínútu eftir sendingu Giuliano Simeone og það síðara eftir hálftímaleik eftir stoðsendingu Antoine Griezmann.
Undir lokin var það svo Angel Correa sem innsiglaði sigurinn með þriðja marki Atletico.
Lokatölur 3-0 og Atletico nú í toppsætinu en Barcelona nær því á nýjan leik vinni liðið sigur á Las Palmas á útivelli í kvöld. Real Madrid leikur síðan gegn Girona á heimavelli á morgun.