Njósnarar enskra stórliða sáu Hákon skína skært Smári Jökull Jónsson skrifar 27. janúar 2025 20:00 Hákon Arnar með boltann á Anfield í síðustu viku, hundeltur af Dominik Szoboszlai. Vísir/Getty Hákon Arnar Haraldsson hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína með liði Lille á leiktíðinni. Í leik gegn Nice í frönsku deildinni á dögunum voru njósnarar enskra stórliða í stúkunni að fylgjast með.
Hákon Arnar hefur skorað fjögur mörk fyrir Lille á leiktíðinni en hann var frá vegna meiðsla um nokkurra vikna skeið fyrir áramót. Hann sneri hins vegar sterkur til baka og skoraði í leik gegn Nice fyrir tíu dögum síðan og spilaði afar vel í leik gegn Liverpool í Meistaradeildinni í síðustu viku. Í dag greinir Daily Mail frá því að á umræddum leik Lille og Nice hafi yfirnjósnarar bæði Manchester United og Newcastle verið á vellinum. Þeir voru þar til að fylgjast með Kanadamanninum Jonathan David en sneru báðir aftur til Englands með jákvæða umsögn um Hákon Arnar. Í leiknum gegn Liverpool nokkrum dögum síðar voru fulltrúar fleiri liða staddir á Anfield en þá var Hákon Arnar sagður hafa verið einn af bestu leikmönnum vallarins. Lille keypti Skagamanninn knáa frá FCK í Danmörku fyrir einu og hálfu ári síðan og í frétt Tipsbladet um málið er sagt líklegt að forráðamenn danska liðsins bíði spenntir eftir mögulegum félagaskiptum Hákons Arnars til Englands þar sem endursöluákvæði sé að finna í samningi FCK og Lille.
Franski boltinn Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira