Þýski reynsluboltinn Mats Hummels tryggði Roma stig gegn Tottenham í Evrópudeildinni í kvöld. Lokatölur 2-2.
Tottenham komst tvisvar yfir í leiknum en Roma jafnaði í bæði skiptin. Jöfnunarmark Hummels leit dagsins ljós þegar mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma.
Spurs náði forystunni strax á 5. mínútu þegar fyrirliðinn Son Heung-min skoraði úr vítaspyrnu. Evan Ndicka jafnaði á 20. mínútu en Brennan Johnson kom heimamönnum aftur yfir fjórtán mínútum síðar.
Staðan var 2-1 allt fram í uppbótartíma þegar Hummels skoraði af stuttu færi eftir fasta fyrirgjöf Angelinos.
Tottenham er í 9. sæti Evrópudeildarinnar með tíu stig en Roma í 21. sæti með sex stig.