Stjórnarliðið freistar þess að rjúfa útboðsstopp í vegagerð Kristján Már Unnarsson skrifar 4. nóvember 2024 21:31 Frá opnun brúar yfir Þorskafjörð í október í fyrra. Lokaáfangi endurnýjunar Vestfjarðavegar um Gufudalssveit hefur síðan verið í óvissu. Vegagerðin Núna er orðið ljóst að samgönguáætlun til næstu fjögurra ára verður ekki lögð fyrir yfirstandandi þing. Við fjárlagagerðina stefnir ríkisstjórnin þó að því að tilgreina nokkur verkefni sem bjóða megi út.
Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um þessa fáheyrðu stöðu; útboðsstopp sem staðið hefur í meira en heilt ár. Fjórtán mánuðir eru núna frá því Vegagerðin bauð síðast út stórt verk. Meðal verkefna sem bjóða átti út á þessu ári en lentu í salti voru: Fossvogsbrú, tvöföldun á Kjalarnesi að Hvalfjarðargöngum, brúasmíði í Gufudalssveit, næsti áfangi á Dynjandisheiði og nýr vegur um Brekknaheiði á Langanesi. Næsti áfangi á Dynjandisheiði, vegarkaflinn af heiðinni og niður í Dynjandisvog, er meðal verkefna sem óvissa ríkir um.Vegagerðin Ástæðan er einkum sú að fjármögnun Hornafjarðarfljóts á grundvelli laga um samvinnuverkefni stóðst ekki. Verkið var engu að síður sett af stað, án nægilegra fjárheimilda, og sogaði það til sín fjárveitingar úr öðrum verkum. Þetta olli uppnámi í þinginu síðastliðið vor og var helsta ástæða þess að stjórnarmeirihlutinn treysti sér ekki til að afgreiða samgönguáætlun. Ríkisstjórnin hefur núna komið því verkefni til fjárlaganefndar Alþingis að kanna hvort unnt sé að koma einhverjum þeirra verka, sem til stóð að hefja á þessu ári, í útboð sem fyrst. Heimildir fréttastofu herma að það sé þó hæpið að þau komist öll í gang á næsta ári, meðal annars sökum þess að Hornafjarðarfljót er enn vanfjármagnað. Þá eru litlar líkur taldar á því að ný jarðgöng verði boðin út á nýju ári. Fjarðarheiðargöng hafa verið næst á dagskrá og þau einu sem eru tilbúin til útboðs. Það virðist þó vera vilji til þess að setja meiri kraft í undirbúning annarra jarðganga. Þar eru nefnd Fljótagöng, ný Ólafsfjarðargöng, ný Hvalfjarðargöng og Súðavíkurgöng. Fjarðarheiðargöng. Svona er gangamunni í Seyðisfirði hugsaður.VEGAGERÐIN/MANNVIT Frestun samgönguáætlunar þýðir jafnframt óvissu um hvernig fer með önnur stórverkefni sem kallað hefur verið eftir. Ef fjögurra ára samgönguáætlun, sem til stóð að kynna núna í október, væri komin fram myndi sjást mörkuð stefna um til dæmis hvenær farið yrði í fleiri Borgarlínuverkefni, breikkun Suðurlandsvegar út frá Reykjavík eða breikkun við Hveragerði. Einnig hvort verkefni eins og Veiðileysuháls á Ströndum kæmist á dagskrá, brúargerð yfir Skjálfandafljót eða Axarvegur. Þá verður áhugavert að sjá hvernig fer með nýja Ölfusárbrú. Fyrir síðustu þingkosningar var brúin helsta kosningaloforð Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra sem lofaði að hún yrði tilbúin annaðhvort árið 2023 eða 2024. Það mun augljóslega ekki rætast. Hann er hins vegar búinn að leggja fram breytingartillögu við bandorminn svokallaða í von um að hysja upp um sig brækurnar. Ef tillagan verður samþykkt þá gæti farið svo að skrifað yrði undir verksamning um Ölfusárbrú í vikunni fyrir kjördag. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Vegagerð Samgöngur Jarðgöng á Íslandi Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Alþingi Ný Ölfusárbrú Fjárlagafrumvarp 2025 Tengdar fréttir Gert ráð fyrir aðkomu ríkisins til viðbótar við brúargjöld Í bandorminum svokallaða, tekjufrumvarpi fjármálaráðherra fyrir næsta ár, er gert ráð fyrir að ríkissjóður gæti þurft að standa undir allt að helmingi kostnaðar við byggingu Ölfusárbrúar. 24. október 2024 09:22 Vestfirðingar segja ítrekuð svik í vegamálum óboðleg „Áætlunum kollvarpað og staðan óboðleg,” er fyrirsögn ályktunar stjórnar Vestfjarðastofu þar sem lýst er miklum vonbrigðum með þá stöðu sem enn og aftur sé komin upp í samgönguframkvæmdum í fjórðungnum. Segir að verið sé að svíkja ítrekuð loforð ráðherra og þingmanna um að þær nýframkvæmdir sem ættu núna að vera á lokastigi yrðu kláraðar eins fljótt og mögulegt væri. 28. júní 2024 14:36 Öll stór verkútboð liggja í salti hjá Vegagerðinni Útboð stórra verka hafa verið stopp hjá Vegagerðinni frá því síðastliðið haust og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir hefjist á þessu ári. Helsta skýringin er sögð sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því þurfi að fjármagna hana úr öðrum verkefnum. 26. júní 2024 23:00 Sigurður Ingi lofar nýrri Ölfusárbrú í lok árs 2023 eða 2024 Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra lofar nýrri brú yfir Ölfusá við Selfoss í lok ársins 2023 eða árið 2024 en framkvæmdir við brúna verða boðnar út um næstu áramót. Brúin mun kosta um sex og hálfan milljarða króna og innheimtur verður vegatollur yfir hana. 6. júní 2021 12:18 Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
Gert ráð fyrir aðkomu ríkisins til viðbótar við brúargjöld Í bandorminum svokallaða, tekjufrumvarpi fjármálaráðherra fyrir næsta ár, er gert ráð fyrir að ríkissjóður gæti þurft að standa undir allt að helmingi kostnaðar við byggingu Ölfusárbrúar. 24. október 2024 09:22
Vestfirðingar segja ítrekuð svik í vegamálum óboðleg „Áætlunum kollvarpað og staðan óboðleg,” er fyrirsögn ályktunar stjórnar Vestfjarðastofu þar sem lýst er miklum vonbrigðum með þá stöðu sem enn og aftur sé komin upp í samgönguframkvæmdum í fjórðungnum. Segir að verið sé að svíkja ítrekuð loforð ráðherra og þingmanna um að þær nýframkvæmdir sem ættu núna að vera á lokastigi yrðu kláraðar eins fljótt og mögulegt væri. 28. júní 2024 14:36
Öll stór verkútboð liggja í salti hjá Vegagerðinni Útboð stórra verka hafa verið stopp hjá Vegagerðinni frá því síðastliðið haust og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir hefjist á þessu ári. Helsta skýringin er sögð sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því þurfi að fjármagna hana úr öðrum verkefnum. 26. júní 2024 23:00
Sigurður Ingi lofar nýrri Ölfusárbrú í lok árs 2023 eða 2024 Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra lofar nýrri brú yfir Ölfusá við Selfoss í lok ársins 2023 eða árið 2024 en framkvæmdir við brúna verða boðnar út um næstu áramót. Brúin mun kosta um sex og hálfan milljarða króna og innheimtur verður vegatollur yfir hana. 6. júní 2021 12:18