Spútnikliðið endaði sögulegt tímabil á stórsigri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. maí 2024 20:57 Artem Dovbyk fagnar marki með félögum sínum í Girona. Getty/Aitor Alcalde Girona endaði langbesta tímabilið í sögu félagsins með því að vinna stórsigur á Granada í lokaumferðinni.
Girona vann leikinn 7-0 og endar með 81 stig og markatöluna 85-46 í 38 leikjum. Artem Dovbyk skoraði þrennu í leiknum og er orðin markahæstur í deildinni. Girona endar í þriðja sæti spænsku deildarinnar og spilar í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Liðið var lengi í efsta sæti deildarinnar en gaf aðeins eftir í baráttunni við risana Real Madrid og Barcelona. Barcelona er aðeins einu stig á undan Girona en Börsungar eiga leik inni um helgina. Eric Garcia skoraði fyrsta markið með skalla á 30. mínútu og Viktor Tsigankov kom Girona í 2-0 aðeins þremur mínútum síðar. Þriðja markið skoraði Artem Dovbyk úr víti á 44. mínútu. Viktor Tsigankov skoraði sitt annað mark í leiknum á 54. mínútu og sjö mínútum síðar missti Granada Facundo Pellistri af velli með rautt spjald. Manni fleiri bætti Girona við þremur mörkum. Það fyrsta skoraði Artem Dovbyk á 75.mínútu og Úkraínumaðurinn lagði síðan upp sjötta markið fyrir Cristhian Stuani. Dovbyk skoraði síðan sjöunda markið úr vítaspyrnu á 90. mínútu. Dovbyk komst með þessum þremur mörkum upp fyrir Norðmanninn Alexander Sorloth á listanum yfir markahæstu leikmenn spænsku deildarinnar í vetur. Dovbyk er með 24 mörk en Sorloth 23 mörk.
Spænski boltinn Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 „Þær eru drullugóðar í fótbolta“ Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Myndasyrpa: Sýndu af hverju þær eru bestar í heimi Sjá meira