Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. maí 2024 20:15 Sverirr Ingi fagnar marki með Franculino, öðrum af markaskorurum liðsins, fyrr á tímabilinu. @fcmidtjylland Sverrir Ingi Ingason og félagar í Midtjylland eru komnir á topp dönsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á FC Kaupmannahöfn, ríkjandi meisturum.
Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliði FCK og skoraði mark í fyrri hálfleik sem var dæmt af vegna rangstöðu. Þar hélt Orri Steinn að hann hefði jafnað metin en Franculino kom gestunum yfir á 23. mínútu þegar Kamil Grabara, markvörður heimaliðsins, missti fyrirgjöf frá vinstri fyrir fætur Franculino. Fram að því höfðu gestirnir varla farið yfir miðju og heimamenn einokað boltann. Ef fyrra markið var sjokk þá var annað markið enn meira sjokk. Það skoraði Charles á 37. mínútu og staðan 0-2 í hálfleik. FCK setti allt í að reyna minnka muninn í síðari hálfleik en tókst það ekki fyrr en á 87. mínútu þegar Diogo Gonçalves skoraði úr vítaspyrnu. Fleiri urðu mörkin ekki, lokatölur 1-2 á Parken í Kaupmannahöfn. Orri Steinn var tekinn af velli á 83. mínútu á meðan Sverrir Ingi lék allan leikinn í liði FCM. Þá var Rúnar Alex Rúnarsson sem fyrr á bekknum hjá FCK. Sigurinn lyftir FCM upp á topp töflunnar en gerir um leið svo gott sem út um titilvonir FCK sem var þó á toppi deildarinnar fyrir leikinn. Staðan í deildinni er þannig þegar tvær umferðir eru eftir að Midtjylland er á toppnum með 61 stig, Bröndby er í 2. sæti með 59 stig á meðan FCK er með 58 stig.
Fótbolti Danski boltinn Tengdar fréttir Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn Stefán Teitur Þórðarson skoraði sigurmark Silkeborg þegar liðið lagði AGF í dönsku efstu deild karla í knattspyrnu. 16. maí 2024 18:05 Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Fleiri fréttir Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Gleði Spánverja mældist á jarðskjálftamælum Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Sjá meira
Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn Stefán Teitur Þórðarson skoraði sigurmark Silkeborg þegar liðið lagði AGF í dönsku efstu deild karla í knattspyrnu. 16. maí 2024 18:05