B-deildarliðið hárs­breidd frá því að fara alla leið

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Fyrirliði Coventry, Ben Sheaf, skaut langt yfir markið á örlagastundu.
Fyrirliði Coventry, Ben Sheaf, skaut langt yfir markið á örlagastundu. Mike Hewitt/Getty Images

B-deildarliðið Coventry City var hársbreidd frá því að fella risann Manchester United í undanúrslitum FA bikarsins. Venjulegum leiktíma lauk með 3-3 jafntefli og framlenging dugði ekki til að skilja liðin að. United fór áfram eftir vítaspyrnukeppni.

Manchester United komst þremur mörkum yfir í leiknum. Scott McTominay skoraði fyrstur, Harry Maguire og Bruno Fernandes bættu svo við. Allt leit út fyrir þægilega siglingu inn í úrslitin gegn bláklædda liði Manchester borgar.

Það breyttist þó fljótt, Ellis Simms minnkaði muninn á 71. mínútu og Callum O’Hare skoraði svo annað mark Coventry nokkrum mínútum síðar. Þeir þjörmuðu áfram að United og uppskáru vítaspyrnu á 95. mínútu sem Haji Wright kom í netið og jafnaði metin.

Framlengingin var æsispennandi líkt og leikurinn. Coventry kom boltanum í netið í uppbótartíma framlengingar en markið var dæmt af vegna hárfínnar rangstöðu.

Bæði lið fengu þó sín tækifæri til að vinna leikinn en ekkert varð úr og því haldið í vítaspyrnukeppni.

Casemiro klikkaði á fyrstu spyrnu United. Callum O’Hare klikkaði svo á þriðju vítaspyrnu Coventry.

Fyrirliði Coventry, Ben Sheaf, skaut langt yfir markið í fjórðu spyrnunni. Rasmus Höjlund steig svo á punktinn og tryggði sigur Manchester United.

Þeir mæta nágrönnum sínum Manchester City í úrslitaleik FA bikarsins þann 25. maí.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira