Rætt var við nokkrar leikkonur landsins sem vita hvað þær syngja þegar það kemur að góðu áhorfi og luma hér á ýmsum ráðum fyrir hámhorfið.
Aldís Amah Hamilton:

„Ég hef verið að horfa á Rick and Morty eða Archer yfir kvöldmatnum þegar við Kolbeinn, sambýlismaður minn, erum að vinna á mis við hvort annað. Nýjustu seríur hafa samt ekki alveg náð mér eins og þær fyrri en á þessum tímapunkti eru þetta orðnir „vinir“ mans.
Saman erum við dugleg að horfa á suðurkóreskt efni, nýlega heillaði Through the Darkness á Netflix okkur. Þeir gerast um aldamótin og eru svona kóreska sagan af Mindhunter.
Í þáttunum er bók Wrestlers nýkomin út og nokkrir lögregluþjónar mjög spenntir að tileinka sér kenningar hans. Leikurinn er frábær og persónurnar svo vel skapaðar, það er eiginlega gullmolinn í þessu. Tónlistin er eiginlega það eina sem var smá óþolandi á köflum en ekkert til að hengja sig á. Það er alltaf gott að horfa á ólíka leikstíla og menningarheima.
Til að vega upp á móti því að vera svona heimskúltiveruð erum við slatta í íslensku efni þessa dagana. Húsó og Kennarastofan eru frábærir upp á lengd að gera og auðvelt að horfa með krökkunum, svona flesta þætti allavega. Aðalpersónurnar í þeim eru svo viðkunnanlegar og leikurinn ofsalega góður hjá Ebbu og Kötlu og fleirum auðvitað, Sveppi kom til dæmis skemmtilega á óvart.
Mesta hámhorfið nýlega var samt á Netflix þættirna Criminal. Breska serían gjörsamlega átti okkur og Kolbeinn var samt að horfa í annað sinn á hana. Erum núna í smá pásu áður en við tökum hin löndin.“
Helga Braga Jónsdóttir:

„Ég er auðvitað búin að vera að horfa á Húsó sem eru æðislegir þættir á RÚV.
Svo er ég búin að vera að horfa á True Detective og það eru náttúrulega frábærir þættir. Ég er svo stolt af íslenskum kollegum mínum sem eru að leika þarna, Lollu minni (Ólafíu Hrönn) og fleirum.
Svo er það sem ég er búin að vera að hámhorfa, það eru þættir sem heita The Cleaning Lady. Ég byrjaði að horfa á þá um borð í Icelandair vél og svo varð ég bara að klára það. Það eru nú tvær þáttaraðir búnar og ég er alveg búin að vera að hámhorfa þetta.“
Þuríður Blær Jóhannsdóttir:

„Ég er að horfa aftur á þættina Girls eftir Lenu Dunham. Þessir þættir voru bylting þegar þeir komu út á sínum tíma og eru brilliantly skrifaðir. Gaman líka að skoða tískuna árið 2012.“
Snæfríður Ingvarsdóttir:

„Í þáttaseríum var ég að klára síðustu seríuna af the Crown og af Ozark. Ég elska báðar seríurnar. Einstaklega vandaðir og vel leiknir þættir.
Annars er ég meira fyrir bíómyndir en þætti. Ég horfi mikið á kvikmyndir og fer mikið í bíó. Ég var að byrja í kvikmyndaklúbbi með vinum þar sem við tökum fyrir áhugaverðar myndir. Næst er það French New Wave Cinema sem verður horft á.
Síðasta myndin sem ég fór á í bíó er Poor Things eftir Yorgos Lanthimos og hún er alveg mögnuð, mæli tvímælalaust með henni!“
Unnur Ösp Stefánsdóttir

„Ég hef verið obsessed af Succession og White Lotus upp á síðkastið. Ekkert jafnast á við svona sturluð handrit. Fléttan mögnuð, leikstjórnin framúrskarandi en umfram allt persónur sem maður elskar að hata og hatar að elska, leiknar af stórkostlegum leikurum.
Ræðan Ronan í lokaseríu Succession fer á spjöld sögunnar yfir eitthvað flottasta leiktvist sögunnar. Kaldhæðni, brotni töffarinn fellir grímuna þegar allir horfa en enginn má sjá,magnað stuff! Toppar allt drasið sem er í boði.
Eins megiði ekki missa af Happy Valley, stórkostlegt stuff. Að sjá svona performance hjá sextugri leikkonu, Söru Lancashire, getur ekki annað en veitt manni innblástur og hvatt mann til dáða. Senan þar sem hún og James Norton gera upp þriggja seríu dramað er eitthvað besta sjónvarpsefni sem sést hefur.
Horfiði bara á þessar þrjár seríur, þá eruði góð! Þær veita afþreyingu, skemmta og breyta einhverju innra með manni með alvöru dýpt og klikkaðri sálfræði.“
Katla Þórudóttir Njálsdóttir

„Ég er týpan sem er alltaf með eitthvað i gangi. Ef ég er að taka til, elda, úti að labba með hundinn og jafnvel í sturtu. Ég er ekki að horfa en er með það í gangi. Ég þoli ekki þögn, ég átta mig á því að þetta er vandamál.
En það eru alltaf sömu seríurnar sem verða fyrir valinu sem bakgrunns hljóð, seríurnar sem ég kann utan að: Community (vanmetnir), New Girl og Castle. (Ég stofnaði Castle aðdáendaklúbb í sjötta bekk, lét fólk taka próf á miðvikudögum úr þættinum sem var kvöldið áður, ef þú fékkst nóg rétt þá máttirðu vera með.)
Síðan horfi ég mikið á Criminal Minds í bland við þetta. Og ef ég er ekki að horfa á grínþætti eða gróteska morð þætti þá horfi ég á 2000’s unglingamyndir, þær láta mér líða vel og mjúkri. Ég er nýverið búin að hámhorfa íslenskt, ég tók Heima er best, Kennarastofuna, Venjulegt Fólk og jú, Húsó.
Ég er einnig búin að vera duglegur leiklistarnemi og hef verið að horfa á Shakespeare myndir, Richard III, A Midsummers Night Dream og Romeo + Juliet (er búin að horfa á hana tvisvar á þessu ári, ekki dæma).
Ég er líka auðvitað í Idol áhorfshóp með vinum mínum. Að lokum verð ég að nefna samt uppáhalds þættina mína sem ég horfi alltaf reglulega á, Fleabag og Sherlock á BBC. Nei hættu nú alveg hvað það er gott sjónvarp. Einnig þarf ég á hverju ári að taka Stelpurnar, Ligeglad og Vaktirnar í einum rykk.“