Atletico bjargaði stigi í uppbótartíma

Siggeir Ævarsson skrifar
Marcos Llorente bjargaði stigi fyrir sína menn í kvöld
Marcos Llorente bjargaði stigi fyrir sína menn í kvöld vísir/Getty

Real Madrid fékk nágranna sína úr Atletico Madrid í heimsókn í borgarslag á Bernabeu en Atletico var og er tíu stigum á eftir Real í töflunni.

Brahim Díaz kom heimamönnum yfir strax á 20. mínútu og lengi vel leit út fyrir að það myndi duga Real til sigurs. Stefan Savic náði að vísu að jafna metin á 50. mínútu en markið var dæmt af eftir yfirferð í VAR-sjánni þar sem að annar leikmaður Atletico var rangstæður og byrgði Andriy Lunin sýn í marki Real.

Fjórum mínútum var bætt við venjulegan leiktíma og þegar tíminn var nánast á þrotum náði Marcos Llorente að stanga boltann í netið og bjargaði stigi fyrir gestina.

Llorente fagnaði að vonum innilega en fagnið hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira