Íslenski boltinn

„Þakk­lætið og brosið frá þeim gefur til baka“

Aron Guðmundsson skrifar
Mikil ánægja er hjá öllum þeim sem koma að verkefninu, að gera þeim Levison og Precious að reyna fyrir sér í fótbolta hér á landi með Aftureldingu. Hér eru þeir félagarnir með Magnúsi Má Einarssyni, þjálfara Aftureldingar og Jóhanni Braga Fjalldal, aðstandanda verkefnisins.
Mikil ánægja er hjá öllum þeim sem koma að verkefninu, að gera þeim Levison og Precious að reyna fyrir sér í fótbolta hér á landi með Aftureldingu. Hér eru þeir félagarnir með Magnúsi Má Einarssyni, þjálfara Aftureldingar og Jóhanni Braga Fjalldal, aðstandanda verkefnisins. Vísir/Sigurjón Ólason

Lið knatt­spyrnu­akademíunnar Ascent Soccer frá Malaví kom, sá og sigraði á al­þjóð­lega mótinu Rey Cup hér í Reykja­vík síðast­liðið sumar. Þar með í för voru leik­mennirnir Levi­son Mnyenyem­be og Precious Kapunda sem hafa nú fengið tæki­færi til þess að upp­lifa draum sinn og spreyta sig á reynslu hjá liði Aftur­eldingar næstu mánuðina með hjálp góðra styrktar­aðila

Ís­lendingurinn Jóhann Bragi Fjall­dal er með annan fótinn í Malaví og hefur þar, á­samt fleiri Ís­lendingum, starfað náið með knatt­spyrnu­akademíunni Ascent Soccer þar í landi. 

Nokkrar ís­­lenskar fjöl­­skyldur hafa haft við­veru í Malaví undan­farin ár, dvalið þar á vegum Utan­­­ríkis­ráðu­neytisins sem vinnur þróunar­­starf þar í landi. Það var í tengslum við það starf sem Jóhann Bragi komst í kynni við Ascent Soccer knatt­spyrnu­akademíuna.

Það sam­starf varð til þess að það tókst að fjár­magna ferð akademíunnar á Rey Cup fót­bolta­mótið, eitt stærsta fót­bolta­mót hvers árs hér á landi, síðast­liðið sumar og gerði lið Ascent Soccer sér lítið fyrir og vann mótið í flokki A-liða í fjórða flokki.

Precious (til vinstri) og Levison (til hægri) eru flottir fulltrúar Ascent Soccer knattspyrnuakademíunnar. Þeir eru hér á landi að upplifa draum sinn með hjálp velunnaraVísir/Sigurjón Ólason

Ekki ein­falt verk­efni

Nú er svo komið að tveir á­tján ára leik­menn akademíunnar, þeir Levin­son og Precious, eru komnir hingað til lands og munu verja næstu þremur mánuðum á reynslu hjá liði Aftur­eldingar.

„Þeir komu með liðinu hingað til lands í sumar en voru of gamlir til þess að spila með því á Rey Cup. Þeir störfuðu því sem nokkurs konar liðs­stjórar á mótinu og fengu um leið að æfa með nokkrum fót­bolta­liðum hér á Ís­landi, þar á meðal Aftur­eldingu og gerðu þar rosa­lega gott mót,“ segir Jóhann Bragi Fjalldal, einn þeirra sem stendur að baki komu leikmannanna hingað til lands.

Jóhann Bragi hefur undanfarin ár verið með annan fótinn í Malaví. Þar komst hann í kynni við knattspyrnuakademíu Ascent SoccerVísir/Sigurjón Ólason

„Það var tekið virki­lega vel á móti þeim, sér­stak­lega hér hjá Aftur­eldingu og fljótt skapaðist gagn­kvæmur vilji á að fá þá hingað aftur til lands og þá yfir lengri tíma. Sjá hvernig það gengi.“

Því var farið í að fjár­magna slíkt verk­efni og með hjálp góðra styrktar­aðila, góð­gerða­fé­laga sem og sam­fé­lagsins í Mos­fells­bæ eru leik­mennirnir nú mættir hingað til lands.

„Þetta er ekki ein­falt verk­efni. Í fyrsta lagi þurfti að fjár­magna flugið fyrir þá sem og uppi­haldið á meðan á veru þeirra hér á landi stendur. Svo þarf að skapa að­stæður hér svo þeir raun­veru­lega geti að­lagast. Þar hefur Aftur­elding staðið sig með mikilli prýði. 

Drengirnir dvelja hér hjá fóstur­fjöl­skyldu á vegum fé­lagsins. Þeir eru ekki bara að æfa fót­bolta heldur einnig að þjálfa ung­menni, fara í grunn­skóla og svona. Það er því búið til um­hverfi sem gerir þeim auð­veldara fyrir vikið að að­lagast Ís­landi. Við erum búin að fjár­magna dvöl þeirra fram í apríl og erum að vinna í því að fá inn fleiri styrktar­aðila svo þeir geti dvalið hér lengur.“

„Allir af vilja gerðir til þess að hjálpa okkur“

Dvöl Levin­son og Precious hér á landi síðasta sumar, á meðan á Rey Cup stóð, varð þess valdandi að þeim langaði ólmum að snúa aftur hingað til lands.

„Já okkur langaði alltaf að snúa aftur til Ís­lands,“ segir Precious. „Hér var ó­trú­lega gott að vera og svo fengum við fréttir af því að við gætum farið á reynslu til Aftur­eldingar. Við erum mjög á­nægðir með að fá það tæki­færi.“

Þeir fé­lagar hafa nú verið hér á landi í rúma viku við æfingar hjá Aftur­eldingu þar sem að þeir hjálpa einnig til við þjálfun yngri flokka hjá fé­laginu.

„Það hefur verið rosa­lega gott að vera hér,“ segir Levi­son. „Leik­mennirnir eru allir af vilja gerðir til þess að hjálpa okkur, þeir eru alltaf til staðar ef okkur vantar að­stoð. Þetta er því mjög á­nægju­leg og lær­dóms­rík reynsla fyrir okkur. Þetta er frá­bært tæki­færi fyrir okkur til þess að verða betri knatt­spyrnu­menn.“

Að sögn þeirra er mikill munur á að­stæðunum sem boðið er upp á hér á landi saman­borið við þær sem þeir hafa reynslu af frá Malaví.

„Mikill munur,“ segir Precious. „Að­stæðurnar heima eru ekki það góðar. Vellirnir eru ekki góðir og erum við því að njóta þess til hins ítrasta að æfa hér með Aftur­eldingu.“

Draumur fyrir þessa stráka að koma hingað

Og Jóhann Bragi segir flesta krakka sem koma inn í starf Ascent Soccer akademíunnar í Malaví koma úr fá­tæk­legum að­stæðum.

„Flestir þessir krakkar koma úr mjög fá­tæk­legum að­stæðum í þorpunum og hafa í raun og veru bara verið að spila fót­bolta á tásunum á moldar­bungum alla ævi. Svo komast þeir inn í þessa akademíu Ascent Soccer og spila og æfa þá við að­eins betri að­stæður.“

Nokkrir af Liðsmönnum Ascent soccer hér á landi síðasta sumarVísir/Dúi

„Þær eru samt ekkert í líkingu við þær að­stæður sem boðið er upp á hér. Vellirnir í Malaví eru ekki góðir mest allt árið. Það er bara al­gjör draumur fyrir þessa stráka að koma hingað, spila á gervi­grasi og inn í fót­bolta­húsum.“

Það eru því mikil við­brigði fyrir þessa ungu menn að koma hingað til lands þar sem að­stæðurnar til fót­bolta­iðkunar eru langtum betri. Svo ekki sé talað um við­brigðin utan fót­bolta­vallarins, að koma hingað til lands yfir vetrar­tímann.

„Eitt­hvað sem þeir höfðu aldrei séð áður“

Magnús Már Einars­son, þjálfari Aftur­eldingar, er veru­lega á­nægður með inn­komu þeirra Levin­son og Precious.

„Þeir komu á nokkrar æfingar hjá okkur á meðan á veru þeirra hér á landi stóð síðasta sumar. Þeir komu hrika­lega sterkir inn í hópinn. Þetta eru frá­bærir leik­menn, með mikla tækni­lega getu, fljótir og maður sér fljótt að þetta eru góðir fót­bolta­menn. Við á­kváðum því í kjöl­farið á veru þeirra hér að leita leiða til að fá þá aftur til okkar. Og með hjálp frá styrktar­aðilum og góð­gerðar­sam­tökum hefur okkur tekist að fjár­magna dvöl þeirra næstu þrjá mánuðina.“

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, hrósar Levison og Precious hástert. Vísir/Sigurjón

„Í drauma­heimi tekst okkur að fjár­magna veru þeirra til lengri tíma, út komandi keppnis­tímabil svo þeir geti verið hér yfir sumar­tímann líka. Þetta eru ungir og efni­legir leik­menn sem geta spilað bæði með öðrum flokki sem og meistara­flokki. Það væri því gaman að hafa þá hjá okkur til lengri tíma.“

Levin­son og Precious hafi að­lagast lífinu hér á Ís­landi mjög vel. Þrátt fyrir allt öðru­vísi að­stæður en þeir þekkja heima í Malaví.

„Þetta eru allt aðrar að­stæður. Þeir eru þó gríðar­lega þakk­látir fyrir þetta tæki­færi því að­stæðurnar hér hvað fót­bolta­iðkun varðar eru miklu betri en í Malaví. Í síðustu viku æfðum við í frosti og miklum vindi en þeir nutu sín mjög vel. Voru ekkert að kvarta en maður sá það þó á þeim eftir æfingu að þeir höfðu aldrei séð annað eins veður. Þetta var eitt­hvað sem þeir höfðu aldrei séð áður.

Þrátt fyrir það spiluðu þeir á fullu og stóðu sig vel á æfingunni. Bara ekkert mál. Hugar­farið hjá þeim báðum er frá­bært. Þetta eru frá­bærir karakterar og virki­lega gaman að sjá hversu mikið þeir eru að njóta sín hér í Mos­fells­bæ.“

Þakk­lætið skín í gegn

Þú nefnir þakk­lætið. Það skín ein­hvern veginn svo mikið í gegn þegar að maður talar við þá. Þakk­lætið fyrir að fá tæki­færi til þess að reyna fyrir sér í fót­bolta hér á landi.

„Ég held að þeir hafi beðið ansi lengi eftir því að fá svona tæki­færi. Að­stæðurnar hér, eins og ég nefndi áður, mun betri heldur en úti í Malaví. Þá erum við með gott lið hérna hjá Aftur­eldingu. Þeir fá því að taka þátt í góðum æfingum og strákarnir hér sem fyrir voru taka þeim mjög vel. Þeir eru því gríðar­lega sáttir og verður gaman að sjá eftir því sem lengra líður á þessa þriggja mánaða dvöl þeirra hér, þegar að þeir eru búnir að að­lagast enn þá betur, hvar þeir standa.“

Precious og Levison eru í skýjunum með dvöl sína hér á Íslandi hingað til. Vonandi gefst þeim tækifæri til að vera hér sem lengst.Vísir/Sigurjón Ólason

Með hjálp frá Braga, styrktar­aðilum og góð­gerða­fé­lögum í kring hefur okkur tekist að láta þetta verða að veru­leika. Þetta er gefandi verk­efni og svo að sjálf­sögðu væri frá­bært ef þessir strákar gætu fengið að vera hér til lengri tíma og jafn­vel spilað með okkur. Tíminn verður bara að fá að leiða það í ljós, hvort að geta þeirra sé þannig, hvort þeir nái að að­lagast að fullu og hvort það náist að fjár­magna það.

Þetta er frá­bært verk­efni og mjög gaman að taka þátt í þessu. Þakk­lætið og brosið frá þeim gefur til baka. Þetta er bara þroskandi fyrir leik­menn Aftur­eldingar að fá hingað leik­menn frá öðrum menningar­heimi og læra af þeim. Þetta er gott fyrir alla.“

Farnir að venjast kuldanum

Og lítur Levi­son á þetta tæki­færi sem fyrsta al­vöru skrefi í átt að mark­miði sínu sem snýr að því að verða at­vinnu­maður í fót­bolta.

„Hér er stórt tæki­færi fyrir mig til þess að koma ferli mínum al­menni­lega af stað. Stóri draumurinn er að verða at­vinnu­maður í knatt­spyrnu og tel ég að­stæðurnar hér geta hjálpað mér að feta mig í átt að þeim draumi. Þetta er bara byrjunin á mínum ferli.“

Veður­farið á þessum tíma árs á Ís­landi getur verið ó­vægið og kalt, al­gjör and­stæða við hitann sem er ríkjandi í Malaví. Því hafa þeir Levin­son og Precious fengið að kynnast.

„Við erum farnir að venjast þessu,“ segir Precious Það er auð­vitað mun kaldara hérna heldur en í Malaví. Bráðum munum við ekki eiga í neinum vand­ræðum með þetta næstu vikurnar.“

Ís­land heppi­leg fyrsta lending

Þá gefur það sam­fé­laginu heima í Malaví í kringum Ascent Soccer úti í Malvía heil­mikið að sjá þessa stráka fá tæki­færi til þess að láta ljós sitt skína hér á Ís­landi eins og Jóhann Bragi segir okkur frá.

„Bæði sam­fé­laginu sjálfu og svo hinum krökkunum hjá Ascent Soccer sem dreymir um að gera slíkt hið sama. Það er mikil­vægt að hafa það í huga að við hugsum þetta sem lang­tíma verk­efni. Við viljum búa til á­kveðinn far­veg fyrir unga krakka frá Malaví til að koma hingað, æfa við frá­bærar að­stæður og fá tæki­færi til þess að sýna sig og sanna. 

Vegna þess að það er bara mjög erfitt fyrir efni­legt knatt­spyrnu­fólk í Afríku að finna sér fé­lags­lið í Evrópu. Það er bara mikil sam­keppni og Ís­land er bara mjög heppi­leg fyrsta lending. Það teljum við og viljum sýna fram á með þessu fyrsta skrefi Levi­son og Precious.“

Fjölmiðlar í Malaví fjölluðu um þetta skref Precious og Levison til ÍslandsVísir/Skjáskot

Eftir að hafa talað við Levin­son og Precious var alveg kýr­skýrt hversu þakk­látir fyrir þetta tæki­færi hér á Ís­landi. Sömu­leiðis vöktu leik­menn Ascent Soccer at­hygli fyrir hugar­far sitt á Rey Cup síðast­liðið sumar.

Er þetta ekki dæmi um verk­efni sem getur nýst bæði Ís­landi og Malaví? Gætu til að mynda ís­lenskir krakkar ekki lært mikið af þessum strákum?

„Alveg hreint,“ svarar Jóhann Bragi. „Það er ýmis­legt sem ég tel að ís­lenskir krakkar geti lært af þessum strákum. Eitt af því er við­horfið. Fyrir þá er þetta al­gjör­lega ein­stakt tæki­færi og eru þeir á­kveðnir í því að sýna sig og sanna. Þá getum við líka horft á fót­bolta­legan lær­dóm af þessu. Þessir leik­menn koma með að­eins öðru­vísi nálgun, eins og ís­lenskir and­stæðingar Ascent Soccer á Rey Cup fundu kannski fyrir síðasta sumar. Þeir eru með mikla tækni, mikinn hraða. Það er ýmis­legt sem ís­lenskir fót­bolta­krakkar geta lært af þessum strákum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×