Lífið

Egill og Íris Freyja eiga von á barni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Íris Freyja og Egill byrjuðu að stinga saman nefjum í janúar 2022.
Íris Freyja og Egill byrjuðu að stinga saman nefjum í janúar 2022. Skjáskot/Íris Freyja

Íris Freyja Salguero fyrirsæta og Egill Halldórsson, eigandi Górilla vöruhúss og Wake up Reykjavík, eiga von á sínu fyrsta barni. Parið greindi frá gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

„Svo þakk­lát að vera fara inn í nýtt ár með ást­inni minni. Bæt­ist við eitt kríli í litlu fjöl­skyld­una okk­ar. Svenni að verða stóri bróðir,“ skrifaði parið og deildi fallegri myndasyrpu af þeim með sónarmynd í hönd.

Þess má geta að Svenni er hundurinn þeirra.

Parið kynntist fyrir tveimur árum síðan á samfélagsmiðlinum Instagram og er óhætt að segja ástina hafa blómstrað síðan. 

Íris Freyja er þekktust fyrir fyrirsætustörf en hún keppti í Miss Universe Iceland árið 2021. Þar hafnaði hún í öðru sæti og var valin Miss Supranational Iceland.


Tengdar fréttir

Hræddi mig hvað ég var hrifin af honum

Íris Freyja Salguero og Egill Fannar Halldórsson kynntust fyrir rúmu ári og óhætt að segja ástina hafa blómstrað síðan. Íris Freyja er þekktust fyrir fyrirsætustörf en hún keppti í Miss Universe Iceland árið 2021. Þar hafnaði hún í öðru sæti og var valin Miss Supranational Iceland. Athafnamaðurinn Egill Fannar er annar eigandi Gorilla vöruhúss og fyrirtækisins Wake Up Reykjavík.

Apple Notes perri sem spilar við kærustuna yfir morgunmatnum

Egill Halldórsson, eigandi Wake Up Reykjavík, Górillu Vöruhúss og framkvæmdastjóri þess síðarnefnda, ætlar að gefa sér það að teljast yfir meðallagi fyndinn. Síðustu mánuði hafa hann og kærastan byrjað daginn á því að borða croissant saman og spila Backgammon áður en þau fara í vinnuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×