Menning

Haraldur hlaut Kærleikskúluna

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Haraldur Þorleifsson hlaut Kærleikskúluna árið 2023. Kúlan er hönnuð af Guðjóni Ketilssyni.
Haraldur Þorleifsson hlaut Kærleikskúluna árið 2023. Kúlan er hönnuð af Guðjóni Ketilssyni. Vísir/Vilhelm

Tuttugasta og fyrsta Kærleikskúlan sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra gefur út var afhjúpuð við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur í dag, miðvikudaginn 6. desember.

Rampaði upp Reykjadal

Ár hvert velur Styrktarfélagið handhafa Kærleikskúlunnar, einhvern sem hefur með verkum sínum breytt viðhorfum og bætt líf samborgara sinna og samfélag, vakið athygli á mikilvægum gildum og sjálfsögðum réttindum.

„Gestaráð Reykjadals afhenti Haraldi Þorleifssyni Kærleikskúlu ársins 2023. Haraldur hefur látið til sín taka á mörgum sviðum samfélagsins, sem frumkvöðull, athafnamaður, hönnuður, tónlistarmaður og mannvinur. Hann er baráttumaður fyrir mannréttindum og betra samfélagi og hefur vakið þjóðarathygli fyrir framgöngu sína í verkefninu Römpum upp Ísland sem hefur það að markmiði að bæta aðgengi fatlaðs fólks í samfélaginu en Haraldur rampaði upp Reykjadal árið 2022.

Verkefnið sem snerist í fyrstu um að byggja 100 rampa í Reykjavík, hefur vaxið hratt og nýlega var þeim stóráfanga fagnað að eitt þúsund rampar hafa verið byggðir víðsvegar um landið. Í samstarfi við Reykjavíkurborg er nú stefnt á að rampa upp opinberar byggingar, gera nýja rampa aðgengilegri fyrir blinda og sjónskerta og setja í forgang að bæta aðgengismál í leik- og grunnskólum. 

Árangurinn sem Haraldur hefur náð við að sameina krafta þjónustuaðila, einkaaðila og yfirvalda til að leita lausna og láta verkin tala fljótt og vel er, eftirtektarverður og víst að verkefnið hefur breytt viðhorfum og vakið samfélagið til vitundar um aðgengismál í víðu samhengi,“ segir í fréttatilkynningu.

HEIMUR er Kærleikskúlan 2023

HEIMUR eftir Guðjón Ketilsson er Kærleikskúla ársins 2023 en hann hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2020. Í fréttatilkynningu kemur eftirfarandi fram: 

„Guðjón er einn fremsti og afkastamesti listamaður landsins. Hann vinnur að jöfnu að gerð teikninga og skúlptúra þar sem handverkið er í forgrunni. Verk hans rýna í mannlegt eðli, líkamann og hversdagslegt umhverfi þar sem kunnuglegir hlutir, form, orð eða ritaður texti eru dregin fram í nýju og gjarnan óvæntu samhengi.

Það er Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna sem hjúpar Kærleikskúluna árið 2023. Kúlan verður hér til sem listgripur á Íslandi þegar 75 ár eru liðin frá því að sáttmálinn var staðfestur til þess að vinna að friðsamlegum samskiptum þjóða. 

Yfirlýsingin kveður á um mannréttindi sem allir eiga tilkall til óháð kynþætti, litarhætti, kynferði, tungu, trú, skoðunum, þjóðerni, uppruna, eignum, ætterni eða öðrum aðstæðum. Sköpun Kærleikskúlunnar á sér því uppsprettu í sammannlegri samhygð, náungakærleika og von um friðsamlegri samskipti þjóða.“ 

Allur ágóði af sölu Kærleikskúlunnar rennur til sumarbúðanna í Reykjadal. Sölutímabil er 7. - 21. desember. Í tilkynningunni segir að það sem geri kúluna dýrmætasta sé innihaldið, sem er kærleikurinn. 

„Nafn kúlunnar er táknrænt en markmið með sölu hennar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og allur ágóði rennur til starfsemi sumarbúðanna Reykjadal þar sem gleði, jákvæðni og ævintýri eru í fyrirrúmi. 

Þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem félagið gefur út Kærleikskúluna en margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar hafa lagt félaginu lið með því að skapa listaverk á glerkúluna.“

FYRRI KÆRLEIKSKÚLUR

  • 2003 – 2 MÁLARAR – Erró
  • 2004 – AUGAÐ – Ólafur Elíasson
  • 2005 – ÁN UPPHAFS – ÁN ENDIS – Rúrí
  • 2006 – SALT JARÐAR – Gabríela Friðriksdóttir
  • 2007 – HRINGUR – Eggert Pétursson
  • 2008 – ALLT SEM ANDANN DREGUR – Gjörningaklúbburinn
  • 2009 – SNERTING – Hreinn Friðfinnsson
  • 2010 – FJARLÆGÐ – Katrín Sigurðardóttir
  • 2011 – SKAPAÐU ÞINN EIGIN HEIM – Yoko Ono
  • 2012 – LOKKANDI – Hrafnhildur Arnardóttir
  • 2013 – HUGVEKJA - Ragnar Kjartansson
  • 2014 – MANDARÍNA - Davíð Örn Halldórsson
  • 2015 – LANDSLAG - Ragna Róbertsdóttir
  • 2016 - SÝN - Sigurður Árni Sigurðsson
  • 2017 - ŪGH & BõÖGâr – Egill Sæbjörnsson
  • 2018 – TERELLA – Elín Hansdóttir
  • 2019 – SÓL ÉG SÁ – Ólöf Nordal
  • 2020 – ÞÖGN – Finnbogi Pétursson
  • 2021 – EITT ÁR – Sirra Sigrún Sigurðardóttir
  • 2022 – KÚLA MEÐ STROKU – Karin Sander
  • 2023 – HEIMUR – Guðjón Ketilsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×