Menning

„Per­sónu­legur smekkur fólks eitt af því okkur þykir vænt um að kynnast“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Gallery Port opnar jólasýninguna sína á morgun. Árni Már Þ. Viðarsson, Natka Klimowicz og Skarphéðinn Bergþóruson segja sýninguna mikla uppskeruhátíð.
Gallery Port opnar jólasýninguna sína á morgun. Árni Már Þ. Viðarsson, Natka Klimowicz og Skarphéðinn Bergþóruson segja sýninguna mikla uppskeruhátíð. Aðsend

Gallery Port opnar sína áttundu jólasýningu á morgun, laugardaginn 2. desember. Sýningin heitir Jólagestir Gallery Port og yfir 60 listamenn taka þátt.

Í fréttatilkynningu kemur fram að fjölmargir listamenn taki þátt að vanda sem vinna í alls kyns miðlum og eru á öllum aldri.

Jólagestir Gallery Port opnar á morgun og stendur til 6. janúar.Facebook/Skjáskot

„Þau eiga það öll sameiginlegt að vera vinir og velunnarar Portsins, hafa haldið þar sýningar eða unnið með Portinu á einhvern hátt. Það verða ný verk á boðstólunum, alls kyns prent og málverk eftir unga og efnilega listamenn, auk þess sem eldri og reyndari höfðingjar og drottningar leynast inn á milli. Aldursbilið er því breytt og sama má segja um listaverkin, sem spanna allt frá minni verkum yfir í stærri og veglegri.“

Ný andlit úr pólsku listasenunni

„Í ár bætast í hópinn þónokkur ný andlit úr pólsku listasenunni á Íslandi, sem við erum spennt að sjá. Á jólasýningunum bætast svo alltaf við ný verk og nýtt listafólk í hópinn fram að jólum, svo segja má að sýningin skiptir reglulega um ham.“

Jólasýningin skiptir reglulega um ham en fjöldinn allur af listafólki sýnir saman.Gallery Port

Árni Már, Natka og Skarphéðinn hjá Gallery Port segja jólasýningar gallerísins fastur liður í jólahefðum listaáhugafólks.

„Jólagestir Gallery Port er næstum uppskeruhátíð, það er gaman að hitta listamennina, fara yfir árið og verkefni þess, bera saman bækur og skoða ný verk. Svo er það þakklátt og gefandi að hitta áhugafólkið sem hefur stutt okkur og finna hvað þeim þykir gaman að skoða svona fjölbreytta sýningu sem þessa.

Hápunktur Jólagesta Gallery Ports er svo alltaf á sjálfa Þorláksmessu þegar hersingarnar mæta á síðustu stundu og gera góð kaup fyrir ástvini eða sig sjálf. Mjög algengt er að pör komi saman og velji sér annað hvort verk saman eða handa hvort öðru.

Að velta fyrir sér fjölbreyttum listaverkunum með gestum, bæði vænlegum kaupendum og áhugafólki, er eitt það skemmtilegasta við svona stóra og margvíslega jólasýningu.

Persónulegur smekkur fólks, næstum persónuleg listasaga gestanna, er eitt af því okkur þykir vænt um að kynnast.“

Leikvöllur ólíkra skoðanna

Þau segja mikinn fjölda fólks sækja sýninguna á ári hverju og sömuleiðis gangandi vegfarendur sem geta virt sýninguna fyrir sér í gegnum gluggann á Laugavegi 32.

„Myndlist er nokkuð sem allir hafa skoðun á. Jólagestir Gallery Port er leikvöllur þessara skoðana og alls áhugafólks um íslenska myndlist.

Opnunin á laugardaginn stendur yfir milli 15-20 og eru léttar veigar í boði fyrir gesti. Sýningin stendur til 6. janúar.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×