Menning

Myndaveisla: Upp­lifun á til­verunni í nýju ljósi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hekla Dögg Jónsdóttir opnaði sýninguna 0° 0° Núlleyja á Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum síðastliðinn laugardag. Markús Þór Andrésson er sýningarstjóri.
Hekla Dögg Jónsdóttir opnaði sýninguna 0° 0° Núlleyja á Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum síðastliðinn laugardag. Markús Þór Andrésson er sýningarstjóri. Listasafn Reykjavíkur

Listakonan Hekla Dögg Jónsdóttir opnaði sýninguna 0° 0° Núlleyja á Kjarvalsstöðum um síðustu helgi. Margt var um manninn á opnuninni þar sem listunnendur sameinuðust og gerðu sér glaðan og skapandi dag. 

Hekla Dögg (f. 1969) er sjöundi listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi. 

„Hvert og eitt þeirra er valið með tilliti til einstaks framlags þeirra og sérhæfingar á sínu sviði, bæði hvað viðvíkur miðlum, aðferðum og viðfangsefnum. Slík stöðutaka á sér stað í framsetningu lykilverka frá ólíkum tímum í Vestursal Kjarvalsstaða og útgáfu sýningarskrár þar sem fjallað um ferilinn í samhengi listasögunnar og samtímans. Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson,“ segir í tilkynningu frá safninu. 

Þá er verkum Heklu Daggar líst sem hverfulum leik á mærum hin hversdagslega og hins töfrandi „þar sem óvæntar ummyndanir bjóða okkur að upplifa tilveruna í nýju ljósi“. Sýningin stendur til 29. febrúar 2024. 

Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni:

Hekla Dögg Jónsdóttir ásamt móður sinni.Listasafn Reykjavíkur
Markús Þór Andrésson sýningarstjóri, Hekla Dögg Jónsdóttir myndlistarmaður og Ólöf K. Sigurðardóttir safnstjóri.Listasafn Reykjavíkur
Ariana Katrín Katrínardóttir og Claus Sterneck.Listasafn Reykjavíkur
Hekla Dögg Jónsdóttir opnaði sýninguna 0° 0° Núlleyja með pomp og prakt.Listasafn Reykjavíkur
Allar kynslóðir sameinuðust á Kjarvalsstöðum síðastliðinn laugardag og nutu listarinnar. Listasafn Reykjavíkur
Sýningunni er líst sem hverfulum leik á mærum hin hversdagslega og hins töfrandi. Listasafn Reykjavíkur

Fólk gerði sér glaðan og skapandi dag á Kjarvalsstöðum.Listasafn Reykjavíkur
Otho og Erna GunnarsdóttirListasafn Reykjavíkur
Hekla Dögg er með sýninguna í Vestursal Kjarvalsstaða.Listasafn Reykjavíkur
Nathalia Druzin Halldórsdóttir og Dorothée Kirch.Listasafn Reykjavíkur
Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Ingibjörg Hannesdóttir og Markús Þór Andrésson.Listasafn Reykjavíkur

Þessar glæsilegu konur voru í góðum gír á opnuninni. Listasafn Reykjavíkur

. Sigrún Hrólfsdóttir og Hallgrímur Helgason létu sig ekki vanta.Listasafn Reykjavíkur

Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Börkur Edvardsson.Listasafn Reykjavíkur

Guðrún Erla Geirsdóttir og Ragnheiður Elísabet. Listasafn Reykjavíkur
Listasafn Reykjavíkur

Nína Guðrún Baldursdóttir, Maríanna Eva Dúfa Sævarsdóttir og Mirra Elísabet Valdísardóttir allar hjá Listasafni Reykjavíkur. Listasafn Reykjavíkur

Ásdís Spano og Edda Halldórsdóttir.Listasafn Reykjavíkur

Joe Keys og Hákon Bragason og Hjalti Freyr Ragnarsson.Listasafn Reykjavíkur

Ólöf K. Sigurðardóttir safnstjóri með erindi.Listasafn Reykjavíkur

Líf og fjör!Listasafn Reykjavíkur

Fjöldamargir kíktu við á sýningaropnun Heklu Daggar.Listasafn Reykjavíkur

Hekla Dögg teygir á hugmyndum okkar um „hér og nú“ og notar listina sem frjálst og opið rými þar sem hver og einn markar sér eigin viðmið.Listasafn Reykjavíkur

Bananaskúlptúrar hafa vakið athygli í samtímalistinni og er eftirminnilegt þegar að banani festur upp á vegg á listahátíðinni Art Basel í Miami sló algjörlega í gegn. Listasafn Reykjavíkur

Hekla Dögg notast við fjölbreytta miðla í listsköpun sinni.Listasafn Reykjavíkur

Hjalti Freyr skoðar listina gaumgæfilega. Listasafn Reykjavíkur

Leikgleðin var sannarlega til staðar á laugardaginn.Listasafn Reykjavíkur

Markús Þór Andrésson sýningarstjóri og Ólöf K. Sigurðardóttir safnstjóri taka á móti gestum.Listasafn Reykjavíkur






Fleiri fréttir

Sjá meira


×