Tíska og hönnun

Farinn að klæðast „kven­­legri“ fatnaði en áður

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Patrekur Jaime er viðmælandi vikunnar í Tískutali.
Patrekur Jaime er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Aðsend

Raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime veit ekkert hvaðan hann sækir tískuinnblásturinn sinn en er alltaf óhræddur við að vera hann sjálfur. Honum finnst ferlega leiðinlegt að versla og máta föt en elskar magaboli og segir sjálfstraustið alltaf besta lúkkið. Patrekur Jaime er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda.

Patrekur Jaime er með einstakan stíl og fer eigin leiðir í tískunni.Aðsend

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Ég elska hvað hún breytist mikið.

Patrekur Jaime elskar breytileika tískunnar.Aðsend

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Ég elska góðar pleðurbuxur, það er alltaf svo klassískt og þægilegt.

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Það er svo misjafnt og fer eftir því sem ég er að gera hverju sinni.

Mér finnst ógeðslega leiðinlegt að versla föt og máta.
Patreki finnst gaman að klæða sig upp en ekki skemmtilegt að versla föt eða máta. Aðsend

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? 

Lowkey sexy.

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Ekkert endilega mikið en ég er þó byrjaður að vera „kvenlegri“ fatnaði en áður.

Patrekur Jaime lýsir stílnum sínum sem lowkey sexy.Aðsend

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Bara ef ég vissi!

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?

Ég elska bara allt maga sem sýnir my skinny waist.

Patrekur segist klæðast „kvenlegri“ fatnaði en áður en annars hafi stíll hans lítið breyst. Magabolir eru í miklu uppáhaldi hjá honum.Aðsend

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Ég elska kjólinn minn sem ég var í á Eddunni í ár. Ég var alveg living og það var svo skemmtilegt kvöld.

Patrekur Jaime glæsilegur á Eddunni í ár.Aðsend

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?

Sjálfstraustið er besta lúkkið.


Tengdar fréttir

„Það getur verið skrýtið að venjast gjör­breyttum líkama“

Hagfræðingurinn, framleiðandinn og tískuskvísan Vaka Njálsdóttir segist alltaf klæða sig eftir fíling og sækir innblásturinn alls staðar að. Hún segir gríðarlega mikilvægt að klæða sig eftir veðri, sérstaklega þar sem íslenski veturinn er nú framundan, en Vaka er viðmælandi í Tískutali.

„Reyni helst að vera ekki á rassinum“

Rithöfundurinn og lífskúnstnerinn Kamilla Einarsdóttir segist ekki vita nokkurn skapaðan hlut um tísku en finnst mikilvægast að föt sé þægileg, hlý og örugg. Helsta tískureglan hennar er að vera helst ekki á rassinum og kaupa flíkur sem eru með marga vasa því þeir geri lífið skemmtilegra. Kamilla er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Lífið er of stutt til að eyða miklum tíma fyrir framan spegilinn“

Töffarinn og lífskúnstnerinn Sóley Kristjánsdóttir starfar sem vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni ásamt því að vera plötusnúður. Hún elskar tjáningarmáta tískunnar og nýtur þess að geta verið alls konar í klæðaburði. Sóley er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Húfan sem fór í klósettið hélt samt áfram að vera í uppáhaldi

Rithöfundurinn, heimspekingurinn og lífskúnstnerinn María Elísabet Bragadóttir segir skemmtilegt að vera opin fyrir innblæstri tískunnar og er mikið fyrir góðar yfirhafnir. Henni finnst vandaðar flíkur standast tímans tönn og reynir að velja sér flíkur með það í huga að geta notað þær árum saman. María Elísabet er viðmælandi vikunnar í Tískutali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×