Íslenski boltinn

Þrenna Erlings, tvenna Kjartans Henry, skjöldur á loft og öll hin mörkin

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Skjöldurinn við það að fara á loft.
Skjöldurinn við það að fara á loft. Vísir/Hulda Margrét

Lokaumferð Bestu deildar karla fór fram í gær að einum leik undanskildum. Erling Agnarsson skoraði þrennu áður en Víkingar lyftu Íslandsmeistaraskildinum, Kjartan Henry Finnbogason skoraði tvennu gegn sínum gömlu félögum og ÍBV féll eftir jafntefli í gegn Keflavík.

Í Víkinni var silfurlið Vals í heimsókn. Það var snemma ljóst hvort liðið ætlaði að enda tímabilið á sigri en Víkingar, sem tóku við Íslandsmeistaraskildinum að leik loknum, sýndu sínar bestu hliðar. 

Klippa: Besta deild karla: Víkingur 5-1 Valur

Erlingur Agnarsson skoraði þrennu fyrir Íslandsmeistarana og Aron Elís Þrándarson gerði tvennu. Aron Jóhannsson skoraði mark Vals í leiknum. Að leik loknum fögnuðu Víkingar svo vel og innilega.

Klippa: Skjöldur á loft í Fossvogi

Í Hafnafirði var KR í heimsókn. FH hafði þegar tryggt sér Evrópusæti og ljóst var að Vesturbæingar myndu ekki leika í Evrópu á næstu leiktíð. Það var því aðeins stoltið undir í Kaplakrika. 

KR-ingurinn fyrrverandi Kjartan Henry Finnbogason virtist vita það manna best en hann skoraði tvö mörk FH í 3-1 sigri liðsins. Dani Hatakka skoraði þriðja mark FH en Ægir Jarl Jónasson skoraði mark KR í leiknum.

Klippa: Besta deild karla: FH 3-1 KR

Fylkir þurfti á sigri að halda gegn Fram en bæði lið voru í fallhættu fyrir lokaumferð deildarinnar. Segja má að Fylkir hafi þó aldrei verið í hættu eftir að leikurinn var flautaður á, lokatölur 5-1 heimamönnum í Árbænum í vil. 

Pétur Bjarnason skoraði tvö mörk fyrir Fylki á meðan þeir Arnór Breki Ástþórsson, Nikulás Val Gunnarsson og Benedikt Daríus Garðarsson skoruðu eitt hver. Aron Snær Ingason skoraði mark Fram.

Klippa: Besta deild karla: Fylkir 5-1 Fram

Þar sem Keflavík náði í stig í Vestmannaeyjum þá hélt Fram sér uppi á meðan ÍBV féll. Muhamed Alghoul skoraði mark Keflavíkur en Eiður Aron Sigurbjörnsson jafnaði metin fyrir ÍBV og þar við sat, lokatölur 1-1.

Klippa: Mörkin úr leik ÍBV og Keflavíkur

Að lokum vann KA 1-0 sigur á HK á Akureyri. Harley Bryn Willard með markið.

Klippa: Mörkin úr leik KA og HK

Lokaleikur tímabilsins fer fram klukkan 14.00 í dag þegar Breiðablik og Stjarnan mætast á Kópavogsvelli. Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport og Stúkan gerir leiki lokaumferðarinnar og tímabilið í heild sinni svo upp klukkan 16.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×