Fótbolti

Fordæma „niðrandi og óþolandi“ söngva eftir komu Greenwoods

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Stuðningsmenn liða í spænsku úrvalsdeildinni hafa sungið ljóta söngva eftir komu Masons Greenwood til Getafe.
Stuðningsmenn liða í spænsku úrvalsdeildinni hafa sungið ljóta söngva eftir komu Masons Greenwood til Getafe. Alvaro Medranda/NurPhoto via Getty Images

Spænska úrvalsdeildarliðið Getafe hefur fordæmt það sem félagið kallar „niðrandi og óþolandi“ söngva í garð liðsins eftir að Mason Greenwood gekk í raðir félagsins.

Greenwood, sem er á láni hjá Getafe frá Manchester United, var á síðasta ári ákærður fyrir árás og tilraun til nauðgunnar eftir ásakanir kærustu sinnar, Harriett Robson. Ákæran var þó látin niður fall í febrúar á þessu ári, en Greenwood átti þó ekki afturgengt í lið Manchester United og gekk því í raðir Getafe á láni út yfirstandandi tímabil.

Stuðningsmenn annarra liða í spænsku úrvalsdeildinni hafa gert sér mat úr máli Greenwoods og sungið söngva um leikmanninn sem forsvarsmönnum Getafe þykja „niðrandi og óþolandi“ eins og áður segir. Til að mynda sungu stuðningsmenn Athletic Bilbao um að Greenwood ætti að deyja er liðin mættust síðastliðinn miðvikudag, en Osasuna fékk refsingu frá spænsku úrvalsdeildinni fyrir samskonar söngva.

Eins og gefur að skilja fara söngvar sem þessir ekki vel í forsvarsmenn Getafe og félagið hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem söngvarnir eru fordæmdir.

„Getafe C.F. vill koma á framfæri að félagið er algjörlega mótfallið þessum niðrandi og óþolandi söngvum og móðgunum sem hafa ítrekað heyrst á leikdögum spænsku úrvalsdeildarinnar og þeim skaða sem þeir hafa á starfsanda leikmanna og þjálfara,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.

„Leikmenn og þjálfarar Getafe, sem atvinnumenn á hæsta stigi, taka þátt í sýningunni og gera sér grein fyrir þeirri athygli sem fylgir því að spila í bestu deild í heimi. En við veðrum að muna að þetta eru manneskjur með tilfinningar, sem eiga fjölskyldu og vini sem þjást með þeim, og þeir eiga skilið virðingu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×