Cancelo full­komnaði ó­trú­lega endur­komu Barcelona

Smári Jökull Jónsson skrifar
Joao Cancelo fagnar sigurmarki sínu í dag.
Joao Cancelo fagnar sigurmarki sínu í dag. Vísir/Getty

Barcelona hefur byrjað tímabilið vel á Spáni og var með 13 stig eftir fyrstu fimm umferðirnar fyrir leikinn í dag.

Það blés hins vegar ekki byrlega fyrir heimamönnum lengst af í leiknum. Jörgen Strand Larsen kom Celta Vigo í 1-0 á 19. mínútu leiksins og Anastasios Douvikas tvöfaldaði forystuna á 76. mínútu. Barcelona í vondum málum þegar þarna var komið við sögu.

Robert Lewandowski ætlaði sér hins vegar ekki að tapa dýrmætum stigum í dag. Hann minnkaði muninn á 81. mínútu eftir sendingu Joao Felix og jafnaði metin fimm mínútum síðar eftir stoðsendingu Cancelo.

Það var síðan Cancelo sjálfur sem tryggði heimaliðinu 3-2 sigur með marki mínútu fyrir lok venjulegs leiktíma. Ótrúleg endurkoma Barcelona staðreynd sem heldur efsta sæti La Liga eftir sigurinn. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira