Enski boltinn

Þriðju stóru kaup Manchester City stað­fest

Smári Jökull Jónsson skrifar
Doku í leik með landsliði Belga.
Doku í leik með landsliði Belga. Vísir/Getty

Manchester City hefur staðfest kaupin á Jeremy Doku frá franska liðinu Rennes. Doku skrifar undir fimm ára samning við enska liðið.

Kaupin á Doku hafa legið í loftinu síðustu daga en Englands- og Evrópumeistararnir staðfestu félagaskiptin í dag en kaupverðið er talið vera um 55 milljónir punda. Doku hefur leikið með Rennes síðan árið 20202 en þá kom hann til liðsins frá Anderlecht.

Doku hefur leikið 16 landsleiki fyrir Belgíu og skorað í þeim tvö mörk. Honum er ætlað að fylla skarð Riyad Mahrez sem fór til Al-Ahli í sumar.

Doku hafði verið orðaður við nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni í sumar og hafnaði Rennes meðal annars tilboði frá West Ham fyrr í mánuðinum. 

Doku er þriðju stóru kaup City fyrir tímabilið en Króatarnir Mateo Kovacic og Josko Gvardiol eru hinir tveir.

„Ég er ungur leikmaður sem á eftir læra og bæta mig mikið. Að vinna með Pep Guardiola og hans starfsliði og að spila með þessum heimsklassa leikmönnum mun gera mig að mun betri leikmanni. Ég er handviss um það,“ sagði Doku þegar félagaskiptin voru í höfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×