Lífið samstarf

Skúrinn hefur verið kær­komin á­skorun fyrir Sæ­borgarana

SS
Hljómsveitin Sæborg er í lokaúrslitum keppninnar um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu. Sveitin er skipuð þeim Pétri Gunnari Guðmundssyni, Kára Jóhannssyni og Gísla Þór Brynjólfssyni. Hér svara þeir félagar nokkrum laufléttum spurningum.

Keppni um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu hefur staðið yfir í sumar í þættinum Skúrinn á Vísi en kosningu lýkur á miðnætti næsta mánudag. Taktu þátt og kjóstu!

Næstu þrjá daga birtast loka viðtölin við keppendurna þrjá sem komust í úrslit. Sæborg ríður hér á vaðið, Gunnar & Benedikt á morgun fimmtudag og Sprite Zero Klan á föstudag.

Á sama tíma og tilkynnt var hvaða þrír flytjendur kæmust áfram var tilkynnt að Gígja Marín hefði unnið keppnina um besta frumsamda lagið sem ber heitið I know.

Hér má kjósa í Skúrnum um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu. Fyrir neðan kosningagluggann má hlusta á nýju útgáfurnar þrjár. Kosningu lýkur á miðnætti mánudaginn 14. ágúst og úrslitin verða tilkynnt í sömu viku.

Rokksveitin Sæborg var stofnuð árið 2007 en þá undir öðru nafni og öðrum formerkjum. Sveitin hefur gefið út nokkrar smáskífur og myndbönd en aldrei gefið út plötu. Tekst Sæborg nú loksins að gefa út sína fyrstu plötu? 

Sveitina skipa þeir Kári Jóhannsson sem syngur og spilar á bassa, Gísli Þór Brynjólfsson sem syngur og spilar á gítar og Pétur Gunnar Guðmundsson, sem spilar á gítar og trommur. „Skúrinn hefur verið kærkomin áskorun fyrir okkur Sæborgarana,“ segja þeir félagar. „Þetta hefur verið virkilega skemmtilegt og krefjandi verkefni sem við erum afar þakklátir fyrir að hafa fengið að taka þátt í.“

Hér svara Kári, Gísli og Pétur nokkrum laufléttum spurningum:

Kári Jóhannsson

Hvenær byrjaðir þú að semja tónlist og/eða texta?

Ég var alltaf að leika mér að búa til rapp eða raftónlist, en keypti svo bassa og skipti að mestu leyti í rokkið 2005.

Hvaða hljóðfæri spilar þú á?

Bassagítar.

Hvaða óvenjulegu hæfileika hefur þú sem fáir vita af?

Ég get sparkað upp fyrir haus.

Hvaða íslenska og erlenda tónlistarfólk er í mestu uppáhaldi hjá þér?

HAM og Úlfur Úlfur. Bítlarnir og Queens of the Stone Age.

Áttu einhverjar sérstakar fyrirmyndir í tónlist?

Geddy Lee.

Eftirminnilegustu tónleikar sem þú hefur sótt?

Botnleðja á Faktorý.

Ef þú mættir velja einn listamann í heiminum til að vinna með, hver væri hann?

David Lynch.

Hvað færðu þér á pylsuna?

Allt, tómat undir og yfir.

Hvaða hráefni, sósu, eða annað, værir þú til í að prufa að setja á pylsuna?

Cholula Sweet Habanero og beikonsulta væru áhugaverðar tilraunir.

Hefur þú prófað eitthvað óvenjulegt ofan á pylsuna?

Ég hef gert pylsu með kokteilsósu, tómatsósu og steiktum lauk á Akureyri, það kæmi mörgum skemmtilega á óvart. Svo eru pylsur sem maður hefur fengið í Danmörku með hálfum poka af steiktum lauk og súrum gúrkum frábærar.

Pylsa eða pulsa?

Pylsa í garðinum, pulsa á götunni.

Gísli Þór Brynjólfsson

Hvenær byrjaðir þú að semja tónlist og/eða texta?

Ég byrjaði að fikta í gítarnum um 2005

Hvaða hljóðfæri spilar þú á?

Gítar

Hvaða óvenjulegu hæfileika hefur þú sem fáir vita af?

Ég hef enga hæfileika.

Hvaða íslenska og erlenda tónlistarfólk er í mestu uppáhaldi hjá þér?

Strokes, Vampire Weekend og Herbert Guðmundsson

Áttu einhverjar sérstakar fyrirmyndir í tónlist?

Sting, hann er hetja og fyrirmynd. Tónlistin sem hann hefur gert í gegnum árin, ég hlusta ekki á hana, en virði hann fyrir að búa hana til.

Eftirminnilegustu tónleikar sem þú hefur sótt?

Botnleðja á Faktorý

Ef þú mættir velja einn listamann í heiminum til að vinna með, hver væri hann?

John Frusciante.

Hvað færðu þér á pylsuna?

Allt.

Hvaða hráefni, sósu, eða annað, værir þú til í að prufa að setja á pylsuna?

Jalapeno.

Hefur þú prófað eitthvað óvenjulegt ofan á pylsuna?

Já.

Pylsa eða pulsa?

Filsa.

Pétur Gunnar Guðmundsson

Hvenær byrjaðir þú að semja tónlist og/eða texta?

Ég held ég hafi tekið mín fyrstu skref í lagasmíðum í tölvuleiknum Music 2000 fyrir Playstation 1.

Hvaða hljóðfæri spilar þú á?

Ég spila aðallega á rafmagnsgítar en hoppa í önnur verk eftir þörfum.

Hvaða óvenjulegu hæfileika hefur þú sem fáir vita af?

Ég gæti leyst Rubik's kubb með skeið í nefinu. Sem er algerlega gagnslaust í rauninni og ekkert í samanburði við Gísla okkar sem er óvenjulega hæfileikaríkur listmálari sem málar undir listamannsnafninu GÞB. Hann er með Facebook síðu sem ég hvet alla til að skoða, en hann er eflaust búinn að segja ykkur allt um það því hann er alls ekkert hógvær.

Hvaða íslenska og erlenda tónlistarfólk er í mestu uppáhaldi hjá þér?

Edda Magnason (íslensk/sænsk).

Áttu einhverjar sérstakar fyrirmyndir í tónlist?

Já þær eru margar og mismunandi en ofarlega á blaði væru til dæmis Jacob Hellner, Martin Gore, Geordie Walker og Steini Magg.

Eftirminnilegustu tónleikar sem þú hefur sótt?

Ég gæti ómögulega gert upp á milli allra þeirra æðislegu tónleika sem ég hef sótt í gegnum tíðina en ég gleymi seint Leoncie á Gullöldinni. Það var svo óvænt og skemmtilegt gigg þar sem hún kom, sá og sigraði.

Ef þú mættir velja einn listamann í heiminum til að vinna með, hver væri hann?

Charlie Chaplin

Hvað færðu þér á pylsuna?

Eina með öllu og extra sinnep. Og ef ég er í heilsuátaki reyni ég að minnka brauðhlutfallið með því að fá mér tvær pylsur í sama brauðið.

Hvaða hráefni, sósu, eða annað, værir þú til í að prufa að setja á pylsuna?

Ananas.

Hefur þú prófað eitthvað óvenjulegt ofan á pylsuna?

Já ég setti einu sinni tómatsósuna ofan á, geri þau mistök ekki aftur.

Pylsa eða pulsa?

P'lsa eiginlega.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×