Fótbolti

Óvæntir hlutir að gerast á HM kvenna í fótbolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikmenn Suður Afríku fagna sigri á móti Ítalíu og sæti í sextán liða úrslitum á HM en Afrikuþjóðirnar eru að koma sterkar inn á HM í ár.
Leikmenn Suður Afríku fagna sigri á móti Ítalíu og sæti í sextán liða úrslitum á HM en Afrikuþjóðirnar eru að koma sterkar inn á HM í ár. Getty/Catherine Ivill

Kvennafótboltinn er í mikilli sókn og hluti af því er sú staðreynd að margir af risum kvennafótboltans geta ekki lengur gengið að úrslitum vísum á HM. Það hefur heldur betur komið í ljós síðustu daga.

Fimm þjóðir á topp tuttugu á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins komust ekki upp úr sínum riðlum á HM kvenna í fótbolta í Ástralíu og Nýja Sjálandi.

Þýskaland, Kanada og Brasilía eru öll meðal tíu bestu kvennalandsliða heims samkvæmt heimslista FIFA en þessir þrír risar eru allir á leið heim frá HM.

Kína, Ítalía og Suður-Kórea eru líka inni á topp tuttugu hjá FIFA en verða ekki meðal þeirra sextán þjóða sem keppa um heimsmeistaratitilinn í ár.

Í þeirra stað eru fjórar þjóðir sem eru ekki meðal þeirra 39 bestu í heimi sem komust í sextán liða úrslitin.

Það óvæntasta er væntanlega afrek Marokkó sem er aðeins í 72. sæti heimslistans og byrjaði heimsmeistaramótið á 6-0 tapi á móti Þýskalandi. Marokkó komst áfram á kostnað Þýskalands.

Suður Afríku er í 54. sæti heimslistans en komst áfram í sextán liða úrslitin á kostnað Ítalíu.

Jamaíka og Nígería eru líka komin áfram. Það hafa því óvæntir hlutir gerst á þessu heimsmeistaramóti og nú þegar riðlakeppninni er lokið tekur enn meiri dramatík við.

@justwomenssports



Fleiri fréttir

Sjá meira


×