Lífið

Tinna Ala­vis til­kynnir fjölgun í fjöl­skyldunni

Íris Hauksdóttir skrifar
Tinna Alavis og dóttir hennar Ísabella Birta eru afskaplega samrýndar mægður.
Tinna Alavis og dóttir hennar Ísabella Birta eru afskaplega samrýndar mægður. aðsend

Áhrifavaldurinn og fegurðardísin Tinna Alavis á von á sínu öðru barni en fyrir á hún dótturina Ísabellu Birtu með Húsafellserfingjanum Unnari Bergþórssyni. 

Einkadóttirin, fram til þessa, Ísabella Birta hefur sópað að sér verðlaunum fyrir framúrskarandi árangur í samkvæmisdansi en Tinna felur dótturinni að tilkynna um væntanlega fjölgun í fjölskyldunni með færslu sinni á Instagram. 

„Elsku fallega Ísabella mín er að verða stóra systir.“

Tinna hefur vakið verðskuldaða athylgi fyrir metnaðarfullt starf sitt sem dansmóðir samhliða því að vera fagurkeri og lífsstílskona. Hér fyrir neðan má til að mynda sjá umfjöllun Vísis um tveggja ára afmæli dótturinnar fyrir nokkrum árum. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×