Fótbolti

Íslenska tían hjá Jong Ajax með leik upp á tíu: Sjáðu mörkin og stoðsendingarnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristian Nökkvi Hlynsson fagnar marki með Jong Ajax en með honum er Mika Godts.
Kristian Nökkvi Hlynsson fagnar marki með Jong Ajax en með honum er Mika Godts. Getty/Patrick Goosen

Kristian Nökkvi Hlynsson átti frábæran leik í vikunni þegar hann hjálpaði yngra liði Ajax að vinna flottan sigur í hollensku B-deildinni.

Kristian Nökkvi lék í treyju númer tíu og þetta var svo sannarlega frammistaða upp á tíu.

Þessi nítján ára strákur skorað tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar og kom því að öllum fjórum mörkum liðsins í 4-2 sigri á ADO Den Haag.

Kristian er búinn að koma að tuttugu mörkum Jong Ajax á þessu tímabili en hann hefur skorað þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum liðsins sem báðir hafa unnist. Liðið hefur skorað fimm mörk og sá íslenski hefur búið til þau öll.

Hér fyrir neðan má sjá mörkin og stoðsendingarnar hjá Kristian í þessum flotta leik.

Í myndbandinu sést vel hversu leikinn og útsjónarsamur hann er. Fyrra markið skorar hann af stuttu færi eins og sannur markaskorari en hitt eftir laglega einleik og klobba inn í teig. Fyrri stoðsendingin hans kemur úr aukaspyrnu en sú síðari úr hraðri sókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×