Fótbolti

Kristian tryggði Ajax sigur í Íslendingaslag

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Kristian Hlynsson skoraði eina mark leiksins í sigir Jong Ajax í kvöld.
Kristian Hlynsson skoraði eina mark leiksins í sigir Jong Ajax í kvöld. Rico Brouwer/Getty Images

Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði eina mark leiksins er Jong Ajax vann 1-0 útisigur gegn Kristóferi Inga Kristinssyni og félögum hans í Venlo í hollensku B-deildinni í fótbolta í kvöld.

Kristian var á sínum stað í byrjunarliði Jong Ajax og lék allann leikinn fyrir liðið, en Kristófer var ónotaður varamaður í liði heimamanna.

Eins og áður segir var það Kristian sem skoraði eina mark leiksins þegar hann kom Ajax í forystu með marki af vítapunktinum þegar rétt rúmar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Niðurstaðan því 1-0 útisigur Jong Ajax sem nú situr í 13. sæti hollensku B-deildarinnar með 43 stig eftir 35 leiki, átta stigum á eftir Venlo sem situr í áttunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×