Tók skóna af hillunni til að hjálpa uppeldisfélaginu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. apríl 2023 12:00 Þorsteinn Már Ragnarsson í leik með Stjörnunni á móti KR en hann lék með báðum félögum í mörg ár. Vísir/Hulda Margrét Þorsteinn Már Ragnarsson var búinn að setja fótboltaskóna upp á hilluna en enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Hann mun eftir allt saman spila á ný með uppeldisfélaginu í sumar.
Víkingur Ólafsvík segir frá því á miðlum sínum að Þorsteinn hafi tekið skóna af hillunni til að hjálpa heimafélaginu sínu. Víkingur spilar í C-deildinni og varð í sjöunda sæti í deildinni í fyrrasumar. „Okkur berast afar góðar fréttir í morgunsárið því Þorsteinn Már Ragnarsson hefur samþykkt að taka skóna úr hillunni, fá félagaskipti yfir í Víking Ó. og vera liðinu innan handar í sumar. Sökum vinnu mun Þorsteinn ekki ná að helga sig knattspyrnunni að fullu en mun engu að síður aðstoða liðið eins og hann getur,“ segir í frétt Víkinga. Þorsteinn hafði leikið sinn síðasta leik á ferlinum með KR í lokaumferð Bestu deildarinnar í fyrra. Það var hans 204. leikur í efstu deild en í þeim hafði hann skorað 33 mörk. Þorsteinn skoraði 18 mörk í 21 leik þegar Víkingar komust upp úr C-deildinni sumarið 2010, þá aðeins tvítugur, og hefur spilað með Ólafsvíkurliðinu í þremur efstu deildunum. Hann er einn marka- og leikjahæsti leikmaður félagsins í efstu deild með 6 mörk og 40 leiki. Þorsteinn spilaði síðast með Víkingsliðinu í A-deildinni sumarið 2017 en hafði síðan farið í Stjörnuna áður en hann fór til KR á lokatímabilinu. Þorsteinn hafði áður spilað með KR frá 2012 og 2015 og varð bæði Íslands- og bikarmeistari með Vesturbæjarfélaginu.
Víkingur Ólafsvík Mest lesið Líður alltaf yfir hana þegar hún kemur í mark Sport „Hefði séð eftir því alla ævi“ Íslenski boltinn Scholes hættir og setur einhverfan son sinn í fyrsta sætið Enski boltinn „Mjög sáttur með samninginn“ Íslenski boltinn „Hann ætti bara að skrifa afsökunarbiblíuna“ Körfubolti Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Handbolti Rúmar tvær milljónir í boði ef þú finnur hundinn hans Aarons Ramsey Fótbolti Hefur spilað 16 mínútur og fengið tvö rauð spjöld Enski boltinn Carrick í einkaviðtali: Sigurinn á Anfield stór stund fyrir Man. Utd Enski boltinn Magnús Már í viðræðum við HK Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Meistararnir klára tímabilið með stæl Uppgjörið: ÍBV - KA 3-4 | KA tryggði sér Forsetabikarinn þriðja árið í röð Ráðast örlög Aftureldingar inni í höll? „Þetta verður bara veisla fyrir vestan“ Vestri og KR mætast á fyrsta degi vetrar: „Vona að það snjói ekki í nótt“ Lárus Orri framlengir á Skaganum „Kominn tími á sigur í Sambandsdeildinni“ Tekur við af læriföður sínum Snjó kyngir niður á Akureyri og Evrópuleikur færður inn „Veistu hvað leikmaðurinn sagði við mig?“ „Ég þarf bara að láta verkin tala“ Sjá meira