Lífið

„Þetta var stór­kost­leg björgun“

Aníta Guðlaug Axelsdóttir skrifar
Danska varðskipið Vædderen var statt í Færeyjum á jóladagsnótt árið 1986.
Danska varðskipið Vædderen var statt í Færeyjum á jóladagsnótt árið 1986. RAX

Á jóladagsnótt árið 1986 sökk flutningaskipið Suðurland við dularfullar aðstæður á leið sinni til Murmansk. Veður var slæmt og kafbátar á vegum Rússa og Breta voru á ferð í nálægð við skipið. Skipið tók á sig mikið högg, sjór flæddi nær stjórnlaust inn, og það tók að sökkva hratt.

Danska varðskipið Vædderen var statt í Færeyjum og fór af stað ásamt þyrlu til þess að bjarga skipverjum Suðurlandsins sem biðu standandi í lekum og tættum gúmmíbát í tæplega ellefu klukkustundir eftir björgun. Báturinn hafði laskast í hafróti upp við skrokk Suðurlandsins og skipverjarnir komust í hann við illan leik. Þeir voru spariklæddir í tilefni jólanna og illa búnir fyrir langa veru í ísköldum sjónum sem gekk ítrekað yfir þá í gegnum tætta yfirbreiðslu björgunarbátsins. Þeir stóðu saman í hnapp því að kaldur sjórinn náði þeim langt upp á fætur inni í bátnum. Átta af ellefu skipverjum Suðurlandsins komust í bátinn og þrír þeirra létust á meðan þeir biðu eftir björgun.

„Þeir sem settust niður stóðu ekki upp aftur.“

RAX var beðinn að fljúga til Færeyja ásamt blaðamönnum Morgunblaðsins og taka á móti skipverjunum þegar þeir kæmu til hafnar með varðskipinu. Ferðin lagðist ekki vel í hann en veður var enn slæmt og mikill mótvindur á leið til Færeyja auk þess sem annað skip, breska tankskipið Syneta, hafði farist sömu nótt við eyjuna Skrúð á Austfjörðum. Allir skipverjar Synetu fórust í því slysi.

„Það voru ónot í mér og ég tók mynd af krökkunum mínum eins og ég væri að sjá þau í síðasta sinn,“ segir RAX sem lýsir atburðum ferðarinnar í nýjasta þætti RAX Augnablik í spilaranum hér að neðan.

Klippa: RAX augnablik - Suðurlandið sekkur

Hér fyrir neðan má sjá fleiri þætti úr smiðju RAX.

Ástæður þess að Suðurlandið sökk eru ráðgáta en önnur ráðgáta er staðsetning hollensks flutningaskips sem strandaði við Skeiðarársand á 17. öld. Öfugt við flest önnur skip sem hafa strandað við Skeiðarársand og horfið í sandinn innihélt hollenska skipið gríðarleg verðmæti. Koparstangir og gimsteinar eru meðal þess sem skipið flutti og það hefur vakið áhuga fólks á því að finna skipið. RAX hefur fylgst með slíkum tilraunum í gegnum tíðina.

Klippa: RAX Augnablik - Leitin að gullskipinu

Ferðin til Færeyja var sannkölluð svaðilför og er ekki sú eina sem RAX hefur lagt upp í. Árið 2011 var RAX að mynda eldgos í Grímsvötnum úr flugvél og ákvað að ná mynd af eldingu í gosmekkinum. Það reyndist ekki hættulaust.

Klippa: RAX Augnablik - Á eldingaveiðum

Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. 

Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.


Tengdar fréttir

RAX Augnablik: „Ég vann við það að vera leiðinlegur“

Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson hefur myndað náttúruhamfarir, skipsströnd, bráðnun jökla og erfiðar aðstæður um allan heim. En hann er líka mikill húmoristi og hefur tekið margar bráðsniðugar myndir síðustu ár. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×