Hér má sjá þáttinn:
Úr þúsund í fimmtíu þúsund á einu ári
„Allt byrjaði þegar ég flutti til Íslands. Þegar ég lenti á Íslandi var ég með þúsund fylgjendur og eftir ár voru þeir orðnir fimmtíu þúsund. Myndunum sem gekk best á netinu voru af stormi, ís, jöklum og svona kaldar myndir.“
Hann segir að sem Ástrali hafi hann ekki verið vel undirbúinn fyrir kuldann hér á landi.
„Ég vissi ekki neitt um kaldar aðstæður og ég átti ekki jakka fyrir það, ég átti ekki neitt.“

Einangruð fegurð
Í listsköpun sinni segist Benjamin stöðugt leitast eftir því að einangra viðfangsefnið til að ná að grípa rétta augnablikið.
„Það er oft ákveðinn punktur sem er einangraður hjá mér. Þetta er orð sem ég nota alltaf, að einangra viðfangsefnið. Þannig get ég sett almennilegan fókus á viðfangsefnið og náð þessu minimalíska elementi fram. Þá er tilfinningalega tengingin sem ég á við viðfangsefnið sett í forgrunn.
Á Íslandi, þar sem það er svo mikil fegurð í kringum okkur, þá þarf hugrekki til að geta sett það allt til hliðar og einblínt á þessi pínulitlu augnablik. Þannig færi ég náttúruna inn í mín verk.
Einn steinn getur sagt svo mikið um stað, til dæmis áferð steinsins. Hann gæti upprunalega komið úr eldgosi, eða skolast til úr hafinu.
Hann er eitthvað sem fólk getur labbað yfir eða sparkað í burtu en ef þú rammar slík viðfangsefni inn á rétta vegu þá færðu betri skilning á því úr hverju landslagið okkar er í raun gert.“
Þættirnir KÚNST með Dóru Júlíu rannsaka hinar ýmsu víddir listsköpunar, ólíka listmiðla og sköpunargleði hjá íslenskum samtíma listamönnum ásamt því að fá að skyggnast bak við tjöldin og heyra um persónulegt líf þeirra.