Lífið

Harry Sty­les og Emily Rata­jkowski deildu frönskum kossi í Tókýó

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Eru Harry Styles og Emily Ratajkowski nýjasta par Hollywood?
Eru Harry Styles og Emily Ratajkowski nýjasta par Hollywood? Getty/Samsett

Það er óhætt að segja að tónlistarmaðurinn Harry Styles sé einn eftirsóttasti hjartaknúsari Hollywood. Það ætlaði því allt um koll að keyra þegar myndir af honum í kossaflensi með fyrirsætunni Emily Ratajkowski birtust á netinu nú um helgina.

Harry Styles var staddur í Tókýó þar sem hann hélt tónleika síðasta föstudag. Það var svo á laugardaginn sem Harry sást á götum borgarinnar ásamt ofurfyrirsætunni Emily Ratajkowski.

Afar vingott var á milli þeirra og náði aðdáandi myndbandi af þeim þar sem þau kysstust innilega upp við sendiferðabíl. Þá dönsuðu þau saman á götunni og virtust ekkert kippa sér upp við þá gangandi vegfarendur sem sáu til þeirra.

Um er að ræða nokkuð óvænt kossaflens en aðeins nokkrar vikur eru síðan Emily var að hitta grínistann Eric André. Þau birtu eftirminnilega nektarmynd af sér saman á Instagram á Valentínusardaginn.

Sjá: Opin­beruðu sam­bandið með nektar­mynd á Valentínusar­daginn

Orðuð við Brad Pitt, Pete Davidson og Eric André á síðustu mánuðum

Nú virðist þó sem Emily og Eric séu farin í sitthvora áttina. Slúðurmiðillinn E! News hefur eftir heimildarmanni að fyrirsætan hafi í raun verið búin að slíta sambandinu nokkrum dögum fyrir Valentínusardaginn og Eric hafi birt þessa mynd án samráðs við hana.

Emily var gift kvikmyndaframleiðandanum Sebastian Bear-McClard en þau þau skildu síðasta haust eftir að hann var henni ótrúr. Síðan þá hefur hún verið að hitta menn á borð við Brad Pitt og Pete Davidson.

Harry Styles átti í funheitu sambandi við leikkonuna og leikstjórann Oliviu Wilde í tæp tvö ár en þau hættu saman síðasta haust.

Aðeins tvær vikur eru síðan Emily og Olivia voru myndaðar saman í eftirpartýi Vanity Fair eftir Óskarinn.

Adwoa Aboah, Emily Ratajkowski og Olivia Wilde saman í eftirpartýi Vanity Fair eftir Óskarinn fyrir tveimur vikum síðan.Getty/Kevin Mazur

Tengdar fréttir

Emily Rata­jkowski ó­­þekkjan­­leg með „pixi­e“ klippingu

Ofurfyrirsætan Emily Rata­jkowski er nánast ó­þekkjan­leg á nýjum myndum sem hún deildi á Instagram. Myndirnar eru úr myndatöku fyrir tímaritið The Pop Magazine og á þeim skartar Rata­jkowski mjög stuttu hári eða svokallaðri „pixie“ klippingu.

Stjörnurnar fögnuðu í eftir­partýi Vanity Fair

Að Óskarsverðlaunahátíðinni lokinni er kvöldið þó rétt að byrja hjá stjörnunum sem tínast í hin ýmsu eftirpartý. Langstærst er eftirpartý tímaritsins Vanity Fair en þangað flykkjast allar stærstu stjörnurnar.

Brad Pitt og Emily Ratajkowski eyða tíma saman

Leikarinn Brad Pitt og fyrirsætan Emily Ratajkowski hafa verið að eyða tíma saman samkvæmt heimildum People. Heimildirnar segja þau þó ekki vera í sambandi og að óljóst sé hversu mikil alvara sé í samskiptunum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×