Fótbolti

Andri Fannar kom inn af bekknum í jafntefli

Smári Jökull Jónsson skrifar
Andri Fannar Baldursson í baráttunni með NEC Nijmegen fyrr í vetur.
Andri Fannar Baldursson í baráttunni með NEC Nijmegen fyrr í vetur. Vísir/Getty

Andri Fannar Baldursson kom inn sem varamaður hjá NEC Nijmegen þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Utrecht í hollensku úrvalsdeildinni í dag.

Andri Fannar byrjaði á bekknum hjá NEC Nijmegen í dag sem kom sér í fína stöðu með tveimur mörkum frá Nany Dimata sitt hvoru megin við hálfleikspásuna. Dimata skoraði fyrra markið á 30. mínútu og bætti öðru marki við strax í upphafi síðari hálfleiks.

Reynsluboltinn Bas Dost minnkaði muninn fyrir Utrecht á 63. mínútu sem jafnaði svo metin fjórum mínútum síðar þegar Othman Boussaid skoraði.

Andri Fannar kom inn af bekknum á 72. mínútu en liði NEC tókst ekki að bæta við marki.

Lokatölur 2-2 og NEC er því áfram í 8. sæti deildarinnar með 33 stig, fjórum stigum á eftir Utrecht sem er sæti ofar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×