Þriðji 1-0 sigur Barcelona í röð

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Hetja Börsunga í kvöld.
Hetja Börsunga í kvöld. vísir/getty

Barcelona styrkti stöðu sína á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld með sterkum útisigri á Athletic Bilbao.

Brasilíski sóknarmaðurinn Raphinha náði forystunni fyrir gestina í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Reyndist það eina mark leiksins en Inaki Williams virtist vera að jafna metin fyrir heimamenn á 87.mínútu en eftir að markið hafði verið skoðað af VAR var það dæmt af vegna leikbrots í aðdraganda marksins.

0-1 sigur Barcelona staðreynd en þetta var þriðji leikur liðsins í röð sem endar þeim í vil með einu marki gegn engu.

Hafa Börsungar nú níu stiga foryst á toppi deildarinnar þegar þrettán umferðum er ólokið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira