Menning

Verbúðin tilnefnd sem besta handrit eftir allt saman

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nína Dögg Filippusdóttir í hlutverki í Hörpu í Verbúðinni.
Nína Dögg Filippusdóttir í hlutverki í Hörpu í Verbúðinni. Verbúðin

Handritið að sjónvarpsþáttunum Verbúðin verður tilnefnt til Edduverðlauna eftir allt saman. Þetta er niðurstaða kjörnefndar Edduverðlaunanna.

Þetta staðfestir Auður Elísabet Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Íslensku sjónvarps- og kvikmyndaakademíunnar í samtali við fréttastofu.

Verbúðin sópaði til sín tilnefningum til Edduverðlauna þegar þær voru kunngjörðar á föstudaginn. Athygli vakti að handrit þáttanna var ekki tilnefnt. Misskilningur milli framleiðanda og framkvæmdastjóra Eddunar olli því að umsókn í flokknum handrit ársins var ekki fullkláruð inni í innsendingarkerfinu. Því kom umsóknin aldrei til kasta kjörnefndar.

Stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademían fól í gær framkvæmdastjóra sínum að kalla valnefnd í flokknum handrit ársins til starfa til að meta hvort tilnefna ætti Verbúðina fyrir handrit ársins. Yrði það niðurstaðan sú að tilnefna Verbúðina þá yrðu sex handrit tilefnd í þeim flokki í stað fimm.

Ekki hlutverk framkvæmdastjóra eða stjórnar að staðreyna innsendingar 

Stjórn ÍKSA sagðist hafa orðið þess áskynja síðdegis á föstudag að innsending í flokkinn hefði ekki borist frá aðstandendum Verbúðarinnar ólíkt öðrum flokkum sem bárust. Aðstandendur Verbúðarinnar  hefðu þó talið sig í góðri trú hafa sent slíka umsókn og að handrit þáttarins kæmi því til greina.

„Eftir að stjórn hafði gert sér grein fyrir þessari stöðu var farið í að skoða alla verkferla málsins. Eftir ítarlega skoðun á gögnum og samskiptum er ljóst að misskilningur milli framkvæmdastjóra og framleiðanda í samskiptum er varða innsendingarkerfið olli því að framleiðandi taldi umsókn um handrit ársins afgreidda þegar raunin var að umsóknin hafði ekki verið fullkláruð inni í innsendingarkerfinu,“ sagði í tilkynningu til meðlima í akademíunni í gær.

Þó var áréttað að það væri ekki hlutverk framkvæmdastjóra eða stjórnar að staðreyna hvort aðstandendur verka hefðu sótt um einstaka flokka fagverðlauna í innsendingarferlinu.

„Þetta er ákvörðun og á ábyrgð þeirra sem senda inn verk. Hlutverk stjórnar varðandi innsendingar eftir að fresti lýkur er fyrst og fremst að skoða hvort verkefni uppfylli þau skilyrði sem kveðið er á um í starfsreglum.“

Einn stjórnarmaður mótfallinn

Þá kom fram í tilkynningunni að mikilvægt væri að allir lúti sömu reglum þar á meðal um skilafrest, og að þeim sé ekki breytt meðan ferli innsendinga, tilnefninga og kosninga stendur yfir. Í ljósi þess að hér kom upp misskilningur milli aðila telur stjórn ÍKSA rétt að heimila valnefnd að fjalla um handrit Verbúðarinnar. Í þeirri rýnivinnu sem nú stendur yfir varðandi tilhögun Edduverðlaunanna, verða gerðar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að uppákomur sem þessar eigi sér stað síðar.“

Ekki var einhugur í stjórn ÍKSA að skoða á ný hvort handrit Verbúðarinnar yrði tilnefnd. Þetta upplýsir Ásgrímur Sverrisson, stjórnarmaður og ritstjóri kvikmyndavefsins Klapptré, í pistli á vef sínum í dag. Hann segir óréttanlegt að Verbúðin fái að senda handritið inn sex vikum eftir að fresturinn rann út.

„Reglur liggja auðvitað fyrir áður en innsendingar hefjast og ekkert í þessu máli gerir það verjanlegt að breyta þeim meðan á ferlinu stendur,“ segir Ásgrímur í pistli sínum.

Sex í flokki í andstöðu við reglur 

„Ákvörðun meirihluta stjórnar skapar það fordæmi að tiltekinn aðili þurfi ekki að lúta sömu reglum og aðrir, að gera megi sérstakar ívilnanir í hans þágu.“

Þá standi skýrt í reglum að tilnefningar í flokkum skuli vera þrjár eða fimm. Nú séu þær sex í flokknum handrit ársins. Ekki gangi upp að breyta reglum meðan á ferlinu stendur. 

„Ljóst er að aðstandendur Verbúðarinnar völdu ekki flokkinn Handrit ársins í innsendingarferlinu sem lauk 24. janúar síðastliðinn, sendu ekki inn handrit eins og reglur kveða á um og greiddu ekki innsendingargjald vegna handritsflokks. Þetta gerðu aðrir.“

Tilnefningarnar orðnar fjórtán

Verbúðin hlaut tilnefningu í þrettán flokkum og nú hefur fjórtánda tilnefningin bæst við. Því má eiga von á verðlaunaflóði þegar verðlaunin verða veitt sunnudaginn 19. mars. 

Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson og Mikael Torfason skrifuðu handritið sem hlotið hefur verðlaun Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins.  

Hér má sjá lista yfir allar tilnefningar til verðlaunanna en eftirtaldir sex aðilar berjast nú um verðlaunin fyrir handrit ársins.

  • Heimir Bjarnason - Þrot
  • Bergsveinn Birgisson, Ottó G. Borg og Ása Helga Hjörleifsdóttir- Svar við Bréfi Helgu
  • Guðmundur Arnar Guðmundsson - Berdreymi
  • Hlynur Pálmason - Volaða land
  • Vala Þórsdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir & Eva Sigurðardóttir - Vitjanir
  • Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson og Mikael Torfason - Verbúðin

Tengdar fréttir

Valnefnd handrita beðin um að skoða Verbúð upp á nýtt

Stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademían hefur falið framkvæmdastjóra að kalla valnefnd í flokknum handrit ársins til starfa til að meta hvort tilnefna eigi Verbúðina fyrir handrit ársins. Stjórn harmar að málið hafi komið upp.

Kurr í menningar­bransanum vegna til­nefninga til Eddu­verð­launa

Margir aðilar innan leikhúss, leiklistar og sjónvarpssbransans á Íslandi hafa tjáð sig um tilnefningar til Edduverðlaunanna sem gefnar voru út á dögunum. Það hefur vakið sérstaka athygli að kvikmyndin Skjálfti í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur hafi ekki hlotið fleiri tilnefningar en raun ber vitni.

Ver­búðin sópar að sér til­­­nefningum til Eddu­verð­­launa

Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2023 voru tilkynntar í dag. Sjónvarpsþættirnir vinsælu Verbúðin hljóta flestar tilnefningarnar í ár en þar á eftir kemur kvikmyndin Svar við bréfi Helgu. Verðlaunin verða veitt í Háskólabíói þann 19. mars næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×