Lífið

Kristín Sif og Stebbi Jak búin að velja dag­setningu

Bjarki Sigurðsson skrifar
Stefán og Kristín opinberuðu samband sitt í júní og eru nú trúlofuð hálfu ári síðar.
Stefán og Kristín opinberuðu samband sitt í júní og eru nú trúlofuð hálfu ári síðar. Instagram

Útvarpskonan Kristín Sif Björgvinsdóttir og tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson hafa valið dagsetningu fyrir brúðkaup sitt. Það verður haldið í Mývatnssveit þar sem Stefán býr.

Stefán og Kristín ætla að gifta sig þann 23. september næstkomandi en það er mbl.is sem greinir frá þessu. Þau trúlofuðu sig í byrjun desember á síðasta ári eftir nokkurra mánaða samband. 

Kristín Sif starfar hjá K100 þar sem hún stýrir morgunþættinum Ísland vaknar. Stefán er söngvari hljómsveitarinnar Dimmu og starfar sem tónlistarkennari. 


Tengdar fréttir

Kristín Sif og Stebbi Jak trúlofuð: „Þúsund sinnum já“

Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona á K100, og Stefán Jakobsson, söngvari í Dimmu, eru trúlofuð en parið greindi frá þessum tímamótum á samfélagsmiðlum í gær. Þau hafa verið saman frá því í sumar og trúlofuðu sig um helgina. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×